Afar óheppilegt að listinn barst til Impregilo 27. apríl 2007 14:55 MYND/Gunnar
Heilbrigðisstofnun Austurlands og Impregilo hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna frétta af veikindum vegna loftmengunar í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar. Þar segir að afar óheppilegt hafi verið að bráðabirgðalisti um sjúklinga sem mögulega urðu fyrir mengunaráhrifum í aðrennslisgöngum virkjunarinnar skuli hafa borist Impregilo. Listanum verður skilað til HSA. Í tilkynningunni segir að þann 26. apríl hafi stjórnendur Impregilo og HSA fundað með yfirtrúnaðarmanni Kárahnjúkavirkjunar og fulltrúa Landsvirkjunar. Fjallað var um aðdraganda þess að 12. apríl vaknaði grunur um að mengun í aðgöngum væri á tilteknum stöðum í svo miklu magni að heilsu starfsmanna væri mögulega stefnt í voða. Fram kom á fundinum að yfirlæknir HSA á Kárahnjúkum hefði komið á framfæri upplýsingum um málið til stjórnenda Impregilo, eftirlitsaðila og annarra sem í hlut áttu. Farið hafi verið fram á úrbætur og hóf Impregilo þegar aðgerðir til að auka loftræstingu í göngunum en vegna ýmissa aðstæðna tókst ekki að bæta loftskipti nægilega mikið. „Þann 22. apríl komu á heilsugæsluna fjórir einstaklingar sem höfðu veruleg einkenni eitrunar og gerði læknirinn þá Landsvirkjun, Vinnueftirliti ríkisins og Heilbrigðiseftirliti aðvart," segir ennfremur. „Í kjölfarið var vinnu hætt í göngunum 24. apríl og verður ekki fram haldið fyrr en tekist hefur að leysa vandann." Bráðabirgðalisti með 180 nöfnum einstaklinga sem leituðu til heilsugæslunnar á tímabilinu 12.-24. apríl vegna einkenna sem hugsanlega gátu verið vegna mengunar var þá settur saman.„Innhald skjalsins komst í hámæli áður en tími gafst til að vinna nánar með listann og flokka frá þá sem ástæðulaust var að skoða frekar. Öllum sem urðu veikir eða höfðu skýr einkenni um eitrun var sinnt strax. Ekki hefur unnist tími til að gera endanlega skýrslu um þessi atvik og það mun taka þó nokkurn tíma. Sem betur fer virðast ekki allir þeir, sem á bráðabirgðalistann eru skráðir, hafa orðið fyrir eitrun eða óþægindum vegna mengunar heldur geta orsakir veikinda þeirra verið aðrar." Stjórnendur Impregilo og HSA segjast í yfirlýsingunni vera sammála um að skynsamlegt og rétt hafi verið að flokka alla sem einkenni höfðu í áhættuhóp og að bíða verði úrvinnslu gagna til að sjá raunveruleg áhrif mengunarinnar. Það sem mestu máli skipti sé að halda áfram virkri heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu á virkjanasvæðinu með hagsmuni starfsmanna að leiðarljósi. Þjónustunni er sinnt af hæfu og dugmiklu fólki sem vinnur oft undir miklu álagi við erfiðar aðstæður, segir einnig. „Það var afar óheppilegt og andstætt reglum að bráðabirgðalisti um þá, sem hugsanlega gætu hafa orðið fyrir mengunaráhrifum, barst í hendur stjórnenda fyrirtækisins. Ekkert liggur fyrir sem sannar ásakanir um að þeir hafi látið starfsmann sinn taka listann ófrjálsri hendi. Listanum verður skilað framkvæmdastjóra HSA." Undir tilkynninguna rita fyrir hönd HSA og Impregilo, Einar Rafn Haraldsson, framkvæmdarstjóri HSA og Ómar R. Valdimarsson, talsmaður Impregilo.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Sjá meira