Mögulegt að lið spili sjö leiki strax í maí Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. nóvember 2010 08:00 Úr leik Breiðabliks og Stjörnunnar á síðasta sumri en Blikar mega eiga von á því að missa einhverja leikmenn í U-21 landsliðið í júní. Fréttablaðið/Stefán
Nú liggja fyrir drög að niðurröðun leikja í Pepsi-deild karla næsta sumar. Þátttaka íslenska U-21 landsliðsins í EM í Danmörku næsta sumar hefur mikil áhrif en mótið fer fram dagana 11.-25. júní. Gert er ráð fyrir því að mótið hefjist 1. maí en ljúki 1. október. Um talsvert lengra tímabil er að ræða en á síðasta sumri þegar tímabilið hófst 10. maí og lauk 25. september. Samkvæmt þeim drögum sem liðin í Pepsi-deild karla fengu að sjá á dögunum er gert ráð fyrir fimm umferðum í maímánuði, rétt eins og í fyrra. Hins vegar eiga 6. og 7. umferðin að fara fram á meðan EM í Danmörku stendur. Þau félög sem eiga leikmenn í U-21 landsliðinu geta fengið þeim leikjum flýtt fram í maí og myndu þá spila sjö deildarleiki í þeim mánuði auk þess sem gert er ráð fyrir því að 16-liða úrslit bikarkeppninnar fari fram 29.-30. maí. Ef af því verður er ljóst að álagið á leikmenn verður mikið í maí, sem og á sjálfa vellina sem oft hafa verið viðkvæmir snemma vors. Þó er enn verið að vinna að drögunum og verða lokatillögur lagðar fyrir formenn og framkvæmdastjóra félaganna á fundi um helgina. Heimildir Fréttablaðsins herma að til standi að spila heila umferð eftir landsleik Íslands og Danmerkur 4. júní og áður en EM í Danmörku hefst 11. júní. Það gæti mögulega létt á álaginu í maímánuði.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Fleiri fréttir Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Sjá meira