Innlent

ASÍ íhugar málshöfðun vegna aðgerða útgerðarmanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ.
Alþýðusamband Íslands áskilur sér rétt til að höfða mál gegn útgerðarmönnum láti þeir verða af fyrirhugaðri vinnustöðvun. Í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í morgun kemur fram að þetta eigi líka við um aðildarsamtök og einstaka félagsmenn. Til greina komi að krefjast skaðabóta og sekta ef aðgerðirnar koma til framkvæmda. Gylfi Arnbjörnsson sagði á laugardag að skildi hann ákvörðun LÍÚ rétt þá væri sambandið að beita Alþingi félagslegri aðgerð til þess að þvinga fram breytingar á áformum um breytingar á lögum. „Þetta gerðu þeir líka fyrir ári í tengslum við sömu deilu við gerð kjarasamninga," bætti Gylfi við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×