„Merkileg“ niðurstaða sýslumanns Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 11. september 2013 15:58 Reynir Ingibjartsson telur að þetta mál hljóti að vekja fólk til umhugsunar. "Ég trúi ekki að öðru en að þessu verði kröftuglega mótmælt. mynd/365 „
Þetta er mjög merkileg niðurstaða, segir Reynir Ingibjartsson,“ formaður Hraunavina um það að Sýslumaðurinn í Reykjavík hafi hafnað lögbannsbeiðni vegna framkvæmda í Gálgahrauni á þeim forsendum að náttúruverndarsamtökin fjögur sem fóru fram á beiðnina hefðu ekki lögvarða hagsmuni að gæta í málinu. Hann minnir á það að Ísland hafi gerst aðili að alþjóðasamningum eins og Árósarsamningum sem tryggja einmitt rétt umhverfissamtaka til þess að leggja mál fyrir dóm. Jafnframt sé þetta hlutverk þeirra viðurkennt í með EES-samningnum. Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir héraðsdómslögmaður tekur undir þessi orð Reynis og segist að niðurstaða Sýslumanns hafi þegar verið kærð til héraðsdóms. Í málinu verði tekist á um lögvarða hagsmuni sem hún telur að náttúruverndarsamtökin hafi samkvæmt þessum samningum og skuldbindingum sem Íslands hefur gengist undir með samningunum. Reyndir segir að samkvæmt þessari niðurstöðu sýslumanns mætti halda að náttúruverndarsamtök séu réttlaus og veltir því fyrir sér hvort starfsmenn sýslumanns séu ekki nægilega upplýstir um breytingar sem orðið hafa á löggjöfinni hvað þetta varðar. Hann segir að þessi samningur um verkið í Gálgahrauni hafi verið gerður án þess að nokkur vissi af, eftir að náttúruverndarsamtökin hafi höfðað mál til ógildingar á framkvæmdinni. Þegar þeim varð ljóst að samningurinn var gerður eftir að málið var höfðað hafi þau ákveðið að fara fram á lögbann framkvæmdanna á meðan að beðið væri eftir niðurstöðu dómstóla. Hann telur að þetta mál hljóti að vekja fólk til umhugsunar. „Ég trúi ekki að öðru en að þessu verði kröftuglega mótmælt. Næstkomandi mánudag er dagur íslenskrar náttúru haldinn, dagurinn er einnig afmælisdagur Ómars Ragnarssonar,“ segir Reynir. „Þetta hefur heilmiklar afleiðingar, það er ekki hægt að una við þessa niðurstöðu. Framkvæmdin sem við kærðum til dómstóla byggir á umhverfismati sem er löngu útrunnið. Umhverfismat er gert til þess að það getir ekki bara hver og einn gert það sem honum sýnist. Það hlýtur þá að vera til einskis að gera slíkt mat ef enginn á aðild að málum þar sem eins og í þessu tilviki sé umhverfismatið löngu útrunnið,“ segir hann.Rökin um að vegurinn sé svona hættulegur, eru bara bull Reynir gangrýnir einnig þau rök sem eru notuð til þess að leggja veginn í gegnum hraunið, að vegurinn sem nú sé þarna sé lífshættulegur. Hann telur að þessi vegur sé ekki hættulegri en hver annar. Hann bendir á það að ef fólki er svona annt um mannslíf þá væri réttara að nota þessa næstum tvo milljarða sem teknir hafa verið frá í framkvæmdina í Landspítalann. Þar sé virkileg neyð samkvæmt því sem fram hefur komið í fjölmiðlum. Þessa tvo milljarða ætti frekar að nota til að bjarga mannslífum þar. Hann segir að þessi rök að þessi vegur sé svona hættulegur séu bara bull.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Sjá meira