Íranar segja viðræðum við Bandaríkin lokið 6. febrúar 2006 16:12 MYND/AP
Íranar útiloka frekari viðræður við Bandaríkjamenn um kjarnorkumál, eftir að málefnum þeirra var vísað til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna. Talsmaður Íransstjórnar sagði í dag að landið myndi standa að fullu við fyrri yfirlýsingar sínar um afleiðingar þess að kjarnorkuþróun landsins yrði vísað fyrir öryggisráðið. Nú væri ekkert til að ræða um við Bandaríkjamenn og Íranar myndu einfaldlega hafa sína hentisemi í því hvernig kjarnorkuþróun yrði háttað í landinu á næstu árum og áratugum. Stjórnvöld í Íran líta svo á að með því að vísa málinu fyrir öryggisráðið hafi vestræn ríki beitt óþolandi yfirgangi og nú verði hart látið mæta hörðu. Landið standi nú frammi fyrir tveimur kostum, að gefast upp, eða veita mótspyrnu o g síðari kosturinn hafi orðið ofan á. Eins og þegar hefur komið fram ætla Íranar að skera á öll tengsl við alþjóða kjarnorku málastofnunina og vísa eftirlitsmönnum þeirra burt frá Íran. Stjórnvöld í landinu ætla að halda áfram að auðga úran, en fari sem horfir verður enn erfiðara en áður fyrir vestræn ríki að fylgjast með þróun mála. Sameinuðu Þjóðirnar segjast samt sem áður ætla að senda eftirlitsmenn til Íran í vikunni og vara Írana við viðskiptaþvingunum ef þeim verði ekki hleypt inn í landið.
Erlent Fréttir Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira