Langholtskirkju gefnar 17 milljónir króna 4. apríl 2009 05:00 Framkvæmdir við bílastæði og fleira á lóðinni kostuðu um sextíu milljónir króna og söfnuðurinn var hættur að ráða við afborganir af láni. Fréttablaðið/Vilhelm
Langholtssöfnuði verða gefnar eftir 16,7 milljónir af 49,8 milljóna eftirstöðvum skuldar við Reykjavíkurborg. Borgarráð staðfesti samkomulag þess efnis á fimmtudaginn. Gengið var frá samkonulagi borgaryfirvalda og Langholtskirkju á fundi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra með fulltrúum safnaðarins fyrir um mánuði. Málið varðar skuldabréf sem gefið var út í apríl 2005. Auk þess sem borgin gefur eftir þriðjung af skuld safnaðarins mun Jöfnunarsjóður sókna og kirkjuráðs greiða borgarsjóði þriðjung af skuldinni. Útbúið verður nýtt skuldabréf til fimm ára fyrir þeim þriðjungi sem eftir stendur, 16,7 milljónum króna, og mun Langholtssöfnuður greiða af því bréfi. Nýja lánið ber þriggja prósenta vexti og er verðtryggt. Helgi Kristinsson, gjaldkeri sóknarnefndar Langholtskirkju, segir upphaflegu skuldina tilkomna vegna lóðarframkvæmda við kirkjuna. „Borgin þrýsti á okkur að ganga frá lóðinni og það má enda segja að frágangur hennar hafi hvorki verið boðlegur gagnvart íbúum hverfisins né öðrum. Eins og oft er vatt kostnaðurinn mikið upp á sig frá upphaflegu áætluninni,“ segir Helgi, sem kveður nýja samkomulagið létta söfnuðinum mikið róðurinn. „Nú sjáum við fram á að geta ráðið við þetta.“ - gar
Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fleiri fréttir Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Sjá meira