Háskólinn þarf meira fjármagn fyrir sumarnám 4. apríl 2009 11:04 Háskóli Íslands á erfitt með að taka á móti nemendum í sumar ef ekki kemur til aukið fjármagn. Mynd/ Stefán.
Háskóli Íslands getur ekki orðið við óskum stúdenta um sumarnám að verulegu leyti nema til komi auknar fjárveitingar til Háskólans. Málið var rætt á fundi háskólaráðs á fimmtudag og þar lýstu fulltrúar í háskólaráði ríkum vilja til þess að finna farsæla og skjóta lausn á málinu. „Allt bendir til að Háskólinn fái ekki fjárveitingu til kennslu um 1.400 nemenda skólans sem hófu nám um síðustu áramót. Jafngildir þetta því að um áttundi hver nemandi stundi nám við skólann án kennsluframlags. Að auki hafa fjárframlög til Háskólans verið skorin niður um nálega 900 milljónir króna á þessu ári. Háskóli Íslands hefur ráðist í viðamiklar aðhaldsaðgerðir til að mæta þessum mikla niðurskurði en þó gætt þess vandlega að halda uppi ýtrustu kröfum um gæði kennslu þannig að prófgráður frá skólanum standist alþjóðlegar gæðakröfur. Í ljósi stöðunnar er því ekki unnt að auka framboð á námi og prófum í sumar nema sérstök fjárveiting fáist," segir í tilkynningu frá Háskóla Íslands. Þá segir að Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskólans, hafi óskað eftir viðræðum við stjórnvöld um sameiginlega lausn vandans en ekki sé unnt að taka frekari ákvarðanir í málinu fyrr en niðurstaða þeirra viðræðna liggi fyrir. Óháð þessu hefur Háskólinn ákveðið að gefa stúdentum kost á að nýta aðstöðu í Háskólanum í sumar til að vinna að námi sínu. Einnig er unnið að því að kanna möguleika á að bjóða upp á valin námskeið og að halda skrifleg próf í ágúst. Horfa þurfti til kostnaðar, námskeiðavals, gæðakrafna og skipulags og umsýslu.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira