Krónan rúin trausti 4. apríl 2009 06:00 Finnur Oddsson „
Með þéttingu gjaldeyrishaftanna hafa Íslendingar sjálfir viðurkennt að krónan er ekki gjaldgeng í alþjóðaviðskiptum,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Hann bætir við að hagkerfinu sé í æ meiri mæli stefnt inn á braut efnahagslegrar einangrunar sem geti reynst sársaukafullt að brjótast út úr. Viðskiptaráð sendi í gær frá sér harðorða skoðun þar sem segir að staðan í gjaldeyrismálum sé óviðunandi. Þar segir að krónan sé rúin trausti á alþjóðlegum fjármálamörkuðum eftir þrot bankanna í fyrra og með inngripi stjórnvalda á gjaldeyrismarkaði með setningu víðtækra hafta. Höftin takmarki verulega umsvif íslenskra fyrirtækja erlendis og getu landsins til utanríkisviðskipta. Þá sé ekki ljóst hvernig krónan verði losuð úr viðjum þeirra án þess að því fylgi verulegt gengisfall með tilheyrandi áföllum fyrir hagkerfið. Lausn á vandamálinu sé mikilvægasta viðfangsefnið í dag enda muni örlög heimila og atvinnulífs að miklu leyti ráðast af gengisþróun næstu missera. Viðskiptaráð telur haftastefnuna ekki duga til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta. Máli skipti að sannfæra innlenda aðila um að betri tímar séu fram undan. Stjórnmálamenn gegni lykilhlutverki til að skapa trúverðuga og ákjósanlega framtíðarsýn í efnahagsmálum. Upptaka annarrar myntar hér á landi, í fullri sátt og samráði við alþjóðasamfélagið, geti orðið verulega til bóta fyrir innlendan efnahag, jafnt til skemmri og lengri tíma. „Í raun stendur valið ekki lengur á milli áframhaldandi sjálfstæðrar peningastefnu og upptöku annarrar myntar, heldur má færa gild rök fyrir því að valið standi einfaldlega á milli upptöku annarrar myntar eða framhalds á núverandi stöðu,” segir Viðskiptaráð. jonab@markadurinn.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Innlent Fleiri fréttir Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Sjá meira