Heilsa sykursjúkra batnaði á 5:2 kúrnum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 21. maí 2015 12:00 Konur sem tileinka sér 5:2 borða einungis 500 kaloríur á dag tvo daga vikunnar en karlar 600 kaloríur. Hina fimm dagana er mataræðið hefðbundið. NORDICPHOTOS/GETTY
Heilsa þeirra sem eru með fullorðinssykursýki batnar við 5:2 kúrinn. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Kerstin Brismar, prófessors við Karólínsku stofnunina í Svíþjóð. Konur sem tileinka sér kúrinn borða einungis 500 kaloríur á dag tvo daga vikunnar en karlar 600 kaloríur. Hina dagana fimm er mataræðið hefðbundið. Prófessornum fannst aðferðin, sem sjónvarpsmaðurinn og læknirinn Michael J. Mosley kynnti árið 2012, áhugaverð, að því er sænska ríkissjónvarpið greinir frá. Hún ákvað að fá einstaklinga sem glíma við ofþyngd, háan blóðþrýsting og fullorðinssykursýki á byrjunarstigi til að prófa 5:2 kúrinn til að komast að því hvaða áhrif hann hefði á heilsu þeirra. 105 einstaklingar hófu kúrinn sem stendur yfir í sex mánuði. Niðurstöður af áhrifum kúrsins á heilsu 62 liggja nú fyrir. Meirihluti þeirra greinir frá því að sér líði vel af kúrnum. Líkamsþyngdarstuðull þeirra er nú rétt undir 27 en fyrir kúrinn var hann rétt undir 29. Aðeins 11 af þeim 105 sem hófu kúrinn hættu. Heilsufar þátttakenda var rannsakað fyrir kúrinn og síðan eftir sex vikur, þrjá mánuði og sex mánuði. Kannað er hálfu ári eftir að kúrnum lýkur hvort áhrifa hans gæti enn. Þegar kúrinn hófst var mittismál þeirra sem voru með fullorðinssykursýki á byrjunarstigi að meðaltali 104 cm. Aukin hætta er talin á hjarta- og æðasjúkdómum ef mittismálið er yfir 102 cm. Eftir að hafa verið á 5:2 kúrnum í sex mánuði var mittismálið orðið 100 cm. Áhrifa kúrsins gætti enn hálfu ári eftir að rannsókninni lauk og mittismálið var að meðtali orðið 98,5 cm. Áhrifin á þá sem ekki voru með fullorðinssykursýki voru einnig góð en þeir voru grennri við upphaf rannsóknarinnar og grenntust ekki jafnmikið. Mælingar á kólesteróli, blóðþrýstingi, blóðsykri og bólgu leiddu í ljós jákvæðar breytingar. Það er mat prófessorsins að niðurstöður rannsókna hennar styrki ekki kenninguna um að 5:2 kúrinn minnki insúlínlíka vaxtarþáttinn IGF-1, sem sagður er tengjast frumuvexti og krabbameini, það mikið að kúrinn lengi lífið hjá fólki. Rannsóknir á músum sýndu að minnkað magn IGF-1 hjá þeim lengdi líf þeirra.Hvað er sykursýki?Sykursýki (diabetes) er efnaskiptasjúkdómur sem einkennist af of háum sykri í blóðinu vegna minnkaðrar framleiðslu á hormóninu insúlíni í brisinu, minnkaðra áhrifa þess í líkamanum eða beggja þessara þátta. Helstu einkenni eru þorsti, tíð þvaglát, þreyta og slen. Sykursýki er í grófum dráttum tvenns konar; tegund 1 og tegund 2, sem einnig kallast fullorðinssykursýki.Tegund 1 greinist aðallega í börnum og ungu fólki og einkennist af bráðum insúlínskorti.Tegund 2 Á síðustu árum hefur komið í ljós að insúlínskortur á einnig þátt í fullorðinssykursýki. Hún einkennist auk þess af auknu insúlínþoli þar sem frumur líkamans hafa myndað ónæmi eða þol gegn insúlíni. Fullorðinssykursýki var áður kölluð insúlín-óháð sykursýki en í ljósi nýrrar þekkingar þykir það gefa villandi mynd af sjúkdómnum.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira