Vilja ekki túrista í íbúðahverfi Barcelona Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 29. ágúst 2014 07:00 Árlega koma 7,5 milljónir ferðalanga til Barcelona á Spáni. NORDICPHOTOS/AFP
Barcelonabúar eru búnir að fá nóg af túristum sem hegða sér eins og borgin sé skemmtistaður. Þúsundir tóku þátt í mótmælum á miðvikudagskvöld gegn fullum ferðalöngum sem margir taka á leigu herbergi eða íbúðir í íbúðahverfum sem íbúarnir segja að séu farin að líkjast sumarleyfisdvalarstöðum á Costa Brava. Á vef Dagens Nyheter er vitnað í Barcelonabúa sem segir ástandið versna með hverju árinu sem líður. Hlandlykt sé á götum úti og öskur og læti að næturlagi. Túrismi í Barcelona hefur meira en sjöfaldast á undanförnum 20 árum og þangað koma árlega 7,5 milljónir ferðalanga. Flestir sem leigja út íbúðir sínar til ferðamanna hafa ekki tilskilin leyfi en margar íbúðanna eru leigðar í gegnum vefinn Airbnb. Eftirlit með ólöglegri útleigu var hert fyrir nokkrum dögum. Íbúar Barcelona eru 1,5 milljónir en sífellt færri fjölskyldur hafa ráð á að búa í borginni því leiguverð hefur snarhækkað. Barcelonabúum finnst að ferðamennirnir geti búið á hótelum þar sem hægt sé að vísa þeim burt hegði þeir sér ekki vel. Haft er eftir rithöfundinum Marc Caellas að mesti vandinn sé fjöldi ferðamanna í tiltölulega lítilli borg eins og Barcelona. Ekki skipti máli hvort ferðamennirnir eyði miklu fé eða ekki. Aðalatriðið sé að þeim fækki.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira