Menntun barna rædd á faglegum forsendum Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. maí 2017 07:00 Menntun fimm ára barna verður til umræðu á ráðstefnu á Grand Hóteli í allan dag. Vísir/Vilhelm
Undanfarin ár hefur við og við skotið upp kollinum umræða um að flytja fimm ára börn af leikskólastiginu og yfir í grunnskóla. „Það hefur verið gert í sumum sveitarfélögum, við þekkum sveitarfélög eins og Garðabæ þar sem hluti barna fer í grunnskóla fimm ára. Það eru heilu sveitarfélögin eins og í Vestmannaeyjum þar sem fimm ára börn fara í deild við grunnskólann og svo framvegis. Akureyri er að byrja að tala um að flytja öll fimm ára börn yfir í grunnskóla,“ segir Kristín Karlsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ. Hún segir ástæðuna alla jafna vera þá að það þurfi að rýma til í leikskólunum til að koma yngstu leikskólabörnunum að. „Oftast er þetta því af praktískum ástæðum,“ segir hún. Kristín segir þessa umræðu hafa áhrif inn í leikskólana sem velti því fyrir sér hvort þeir undirbúi börn nógu vel undir grunnskólann. „Það skiptir máli hvernig grunnskólarnir taka á móti fimm ára börnum, hvernig þeim er mætt.“ Umræða um menntun fimm ára barna er viðfangsefni ráðstefnu sem haldin verður á Grand Hóteli milli kl. 9.30 og 16.30 í dag. „Okkur fannst mikilvægt að reyna að ræða þetta í víðu samhengi og auðvitað fyrst og fremst með hliðsjón af því hvað þessi aldurshópur þarf. Hvers konar menntun við þurfum að bjóða þeim upp á,“ segir Kristín. Ráðstefnan er haldin á tíu ára afmæli Rannung sem er rekið á vegum Menntavísindasviðs og hefur það að markmiði að auka og efla rannsóknir á menntun og uppeldi ungra barna á aldrinum 0 til 8 ára og vera vettvangur fræðaþróunar á því sviði. „Það er á þessu sviði sem við höfum aðallega verið að rannsaka börn á leikskólaaldri og fyrstu árum grunnskólans,“ segir Kristín. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Sjá meira