25 sekúndum frá því að hlaupa maraþon á undir tveimur tímum Atli Ísleifsson skrifar 6. maí 2017 08:01 Eliud Kipchoge eftir að hafa unnið maraþonhlaupið á Ólympíuleikunum í Ríó síðasta sumar. Vísir/afp
Keníumanninum Eliud Kipchoge mistókst í morgun að verða fyrstur manna til að hlaupa maraþon á undir tveimur tímum. Tilraunin var gerð við kjöraðstæður á Ítalíu og var hann 25 sekúndum frá því að takast ætlunarverkið. Tími hins 32 ára Kipchoge var 2:00:24 þar sem hann naut aðstoðar manna sem héldu uppi hraðanum allan tímann verður tíminn því ekki skráður sem heimsmet. Dennis Kimetto á því enn hraðasta tímann, 2:02:57. Tilraunin var skipulögð af Nike fyrir luktum dyrum á kappakstursbrautinni Monza á Ítalíu, en auk Kipchoge gerðu Erítreumaðurinn Zersenay Tadese og Eþíópíumaðurinn Lelisa Desisa tilraun til að ná takmarkinu. Snemma í hlaupinu var ljóst að þeir Tadese og Desisa myndu ekki ná tíma undir tveimur tímum. Í frétt BBC kemur fram að tilraunin hafi verið gerð á sama degi ársins og hinum breska Roger Bannister tókst að hlaupa míluna á undir fjórum mínútum. Það gerði Bannister fyrir 63 árum síðan. Kappakstursbrautin Monza varð fyrir valinu vegna fárra krappra beygja og góðar veðurfræðilegar aðstæður á svæðinu. Svokallaðir hérar héldu uppi hraðanum og brutu vindinn fyrir þá hlaupara sem gerðu tilraun til að ná takmarkinu. Þá var drykkjum komið til þetta af mönnum á mótorhjólum til að þeir þyrftu ekki að hægja á sér á drykkjarstöðvum. Til að ná takmarkinu hefðu mennirnir í raun þurft að hlaupa 100 metrana á sautján sekúndum að meðaltali, 422 sinnum í röð. Kipchoge var þrátt fyrir allt ánægður með árangurinn og sagði daginn sögulegan. Nike greiddu mönnunum fé til að sleppa London- og Berlínarmaraþonunum í ár til að taka þátt í tilrauninni.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Rektor Cornell-háskóla rífur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Sjá meira