Lífvörður Cameron gleymdi hlaðinni byssu á klósetti flugvélar Samúel Karl Ólason skrifar 5. febrúar 2020 09:08 Annað vegabréfið tilheyrði David Cameron, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og hitt lífverðinum sem hafði gleymt byssunni og vegabréfunum á klósettinu. EPA/FACUNDO ARRIZABALAGA
Manni sem var á leið frá New York til London á mánudaginn brá heldur í brún þegar hann fór á klósettið í flugvél og fann þar hlaðna skammbyssu og tvö vegabréf. Annað vegabréfið tilheyrði David Cameron, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og hitt lífverðinum sem hafði gleymt byssunni og vegabréfunum á klósettinu. Atvikið átti sér stað á flugbraut í New York meðan flugstjóri flugvélarinnar var að bíða eftir heimild til flugtaks. Umræddur lífvörður, sem starfar hjá lögreglunni, hefur verið settur í leyfi og er málið til rannsóknar. Lögreglan segir málið litið alvarlegum augum. Samkvæmt Reuters fréttaveitunni varð upp fótur og fit meðal farþega eftir að byssan fannst. Flugstjóri flugvélar British Airways staðfesti við farþega að skotvopnið hefði fundist og ítrekaði að það væri í eigu lögregluþjóns sem hafði heimild til að bera vopnið. Farþegar voru þó ekki sáttir og var það að endingu tekið af honum, áður en flugvélinni var flogið á loft. Cameron hefur sjálfur verið gagnrýndur fyrir kæruleysi en árið 2012, tveimur árum eftir að hann varð forsætisráðherra Bretlands, gleymdi hann átta ára dóttur sinni á bar þar sem hann borðaði hádegisverð. Hann sótti hana fimmtán mínútum síðar.
Bandaríkin Bretland Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira