Lánshæfi Landsvirkjunar er metið lakara en ríkisins 22. desember 2008 03:30 Sprengt var fyrir stöðvarhúsi Búðarhálsvirkjunar áður en framkvæmdum var frestað árið 2003.
Lánshæfismat Landsvirkjunar var fyrir helgi lækkað af Standard & Poor‘s. Lánshæfi fyrirtækisins er því metið lakara en ríkisins. Lækkunin er ekki talin hafa áhrif á fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir af forsvarsmönnum fyrirtækisins. „Það eru alltaf slæmar fréttir að fá slakari lánshæfiseinkunn þótt þetta hafi ekki bein áhrif á okkur á þessum tímapunkti. Landsvirkjun fær ekki bankalán erlendis þessa dagana frekar en nokkur annar, óháð þessari niðurstöðu,“ segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. Spurður hvort matið hafi áhrif á áætlanir um uppbyggingu segir Friðrik að fyrirtækið hafi svigrúm til að ákveða hvenær ráðist sé í framkvæmdir og engar skuldbindingar séu um verkefni. „En við getum borgað af okkar lánum á næstu misserum, svo staða okkar er betri en margra annarra fyrirtækja. Það skiptir mestu.“ Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s lækkaði lánshæfismat fyrirtækisins fyrir skuldbindingar í innlendri mynt á fimmtudag. Framtíðarhorfurnar eru sagðar neikvæðar og er lækkunin sögð endurspegla „þá skoðun okkar að eigandi Landsvirkjunar, íslenska lýðveldið, hafi minni getu en áður til að veita fyrirtækinu fjárhagslegan stuðning,“ eins og segir í tilkynningu. Lækkuð lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar kemur einkum til vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs, en vegna ríkisábyrgðar breytist mat fyrirtækisins í takt við lánshæfismat íslenska ríkisins. Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar, segir að lánshæfi fyrirtækisins innanlands sé nú það sama og í erlendri mynt. „Lánsfjárþörf Landsvirkjunar er að langstærstum hluta á erlendum markaði svo það er jákvætt að einkunn á erlendar skuldbindingar lækkar ekki. Ég myndi þess vegna fara varlega í að túlka það sem svo að þetta hefði veruleg áhrif á áætlanir Landsvirkjunar um uppbyggingu.“ Þessi niðurstaða S&P þýðir að lánshæfi Landsvirkjunar er lægra en ríkisins, að sögn Stefáns. Fyrirtækið undirbýr nú fjórar virkjanir á Suðurlandi; Búðarhálsvirkjun og þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Takist ekki að tryggja langtíma lánsfjármögnun á næstu mánuðum gætu framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun tafist, en til stóð að hefja framkvæmdir snemma árs 2009. Kostnaður er áætlaður 25 milljarðar króna.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira