Netþjónabú gætu skapað fleiri atvinnutækifæri en álið 22. desember 2008 08:31 Röð netþjóna í svokölluðu netþjónabúi. MYND/Hostedsolutions.com
Netþjónabú gæti skapað fleiri atvinnutækifæri en álframleiðsla, miðað við hverja raforkueiningu, sem reksturinn tekur til sín. Þetta kemur fram í svari iðnaðarráðherra við fyrirspurn Ármanns Kr. Ólafssonar þingmanns. Þannig gætu skapast allt að 2,4 bein störf við netþjónabú fyrir hvert Megawatt af raforku, en aðeins eitt starf skapast á Megawatt í áliðnaði. Í járnblendi skapast tæplega tvö bein störf og eitt og hálft við kísilvinnslu. Hér er aðeins talað um bein störf í hverri grein, en ef svonefnd afleidd störf eru talin með þá skapast tvö störf aukalega við hvert Megawatt í áliðnaði, svo dæmi sé tekið. Í svari ráðuneytisins eru tekin tvö dæmi af fyrirhuguðum gagnaverum hér á landi. Annarsvegar gagnaver á Suðvesturlandi sem nýtti allt að 25 MW rafafl í byrjun og gæti þurft 30-60 fasta starfsmenn. „Fjöldi beinna starfa yrði 1,2-2,4 á hvert MW, en ef allt væri talið, bein störf og afleidd störf, eru störfin 2,4-4,8 á hvert MW. Þetta hlutfall kynni að breytast ef gagnaverið yrði stækkað,“ segir einnig. Þá er bent á að annar fjárfestir hafi sýnt áhuga á að reisa mörg gagnaver sem staðsett yrðu víða um landið. Hvert þeirra mundi þurfa 10-15 MW rafafl. „Fjöldi beinna starfa yrði um 1,3-1,5 á hvert MW, en ef allt er talið, bein störf og afleidd, yrðu störfin 2,7-3,0 á hvert MW,“ segir í svari iðnaðarráðherra. Í svari ráðherra kemur þó fram að erfitt sé að meta fyrirfram fjölda starfsmanna í hugsanlegum gagnaverum á Íslandi með nákvæmni og er einnig tekið dæmi frá Bandaríkjunum þar sem hlutföllin eru mun hærri en aðilar hér á landi reikna með, eða um 4,8 til 6,5 störf á hvert megawatt. Í fréttum hér á Vísi í morgun og í hádegisfréttum Stöðvar 2 var stuðst við þær tölur en ekki áætlanir fyrir íslensk netþjónabú, beðist er velvirðingar á því.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira