Spánverjar krefjast skaðabóta 3. júní 2011 06:00 Rússnesk stjórnvöld bönnuðu í gær innflutning á grænmeti frá öllum ríkjum Evrópusambandsins. Nordicphotos/AFP
José Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, gagnrýnir bæði Evrópusambandið og Þýskaland harðlega fyrir að nefna Spán sérstaklega sem líklegt upprunaland banvæns kólígerlafaraldurs í norðanverðri Evrópu. Spænsk stjórnvöld krefjast skýringa og ætla að fara fram á skaðabætur vegna þess að fréttirnar urðu til þess að útflutningur á grænmeti frá Spáni til annarra Evrópuríkja stöðvaðist nánast í kjölfarið. Zapatero segir að framkvæmdastjórn ESB hafi brugðist seint við þegar í ljós kom að kólígerillinn banvæni fannst ekki í gúrkunum frá Spáni, sem í fyrstu voru taldar vera skaðvaldurinn. „Um leið og ráðherrann í Hamborg hafði útilokað að þetta hafi stafað af spænskum gúrkum þá hefði hún átt að bregðast hraðar við og af meiri festu,“ sagði hann. Spænskir bændur eru æfir vegna málsins og efndu til mótmæla fyrir utan ræðismannsskrifstofu Þýskalands í Valencia í gær, þar sem þeir sturtuðu um 300 kílóum af káli, tómötum, gúrkum og öðru grænmeti á götuna. Enn er ekkert vitað um uppruna gerilsins, sem sýkt hefur á annað þúsund manns og dregið hundruð manna til dauða á fáeinum dögum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO staðfesti í gær að þetta tiltekna afbrigði gerilsins hefði aldrei sést áður.- gb
Mest lesið Tvö hundruð manns bjargað af þjóðvegi 1 Innlent Atvinnulífið misnoti heilbrigðiskerfið Innlent Bandaríkin áður mun öflugri á Grænlandi Erlent Þessi sóttu um hjá Höllu Innlent Ragnar Þór verður ráðherra Innlent Telur að Evrópa myndi fórna Grænlandi fyrir NATÓ Erlent Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Erlent Guðmundur Ingi segir af sér Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Leita að manneskju við Sjáland Innlent Fleiri fréttir Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Bandaríkin áður mun öflugri á Grænlandi Telur að Evrópa myndi fórna Grænlandi fyrir NATÓ Mikil spenna í Minneapolis eftir banaskot ICE-liða Veikindi geimfara gætu flýtt heimför áhafnar geimstöðvar Segist hafa grænt ljós frá Trump fyrir frekari refsiaðgerðum gegn Rússum Enn mótmælt í Íran og átök að aukast Gervigreind Musk sögð hafa búið til kynferðislegar myndir af ellefu ára gömlum börnum Þingmaður Svíþjóðardemókrata tekin full undir stýri með kókaín í poka Trump-liðar hóta fauta Maduros sömu örlögum eða dauða Trump sé tilbúinn að ganga „eins langt og nauðsynlegt er“ gagnvart Grænlandi Þyngdartap með lyfjum mun fljótara að ganga til baka eftir að notkun er hætt Trump dregur enn frekar úr þátttöku Bandaríkjanna á alþjóðasviðinu Þúsundir Kólumbíumanna mótmæltu hótunum Trump „Trúið ekki þessari áróðursvél“ Gæti leitt til aukinnar íhlutunar í Atlantshafi Fulltrúi ICE skaut konu til bana í Minneapolis Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Danskir og bandarískir erindrekar funda um Grænland í næstu viku „Ég efa að NATO yrði til staðar fyrir okkur“ Tóku einnig skuggaskip í Karíbahafinu Vill senda danska hermenn til Grænlands Allra augu á Íslandi og Atlantshafinu Ásælni Trumps í Grænland og skuggaskip Rússa Víða truflanir í Evrópu vegna snjókomu Gerðu áhlaup á rússneskt skuggaskip í efnahagslögsögu Íslands Rússar senda herskip til móts við olíuskip elt af Bandaríkjunum Segir Venesúela munu afhenda Bandaríkjunum milljónir tunna af olíu Útiloka ekki að beita hernum í Grænlandi „Stórt framfaraskref“ Sjá meira