Alþingi síðast sett klukkan hálf tvö á laugardegi Höskuldur Kári Schram skrifar 27. september 2011 19:00
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að þingsetningu á laugardag hafi ekki verið flýtt útaf boðuðum mótmælum. Lögreglan verður ekki með heiðursvörð vegna sparnaðar. Hátt í þrjú þúsund mótmælendur söfnuðust saman á Austurvelli þegar alþingi var sett í október á síðasta ári. Eggjum var kastað að alþingismönnum og forseta Íslands sem áttu fótum sínum fjör að launa. Samkvæmt venju er alþingi sett í byrjun októbermánaðar og hefur athöfnin hingað til hafist klukkan hálf tvö. Mótmælendur tóku mið af þessari venju þeir boðuðu til nýrra mótmæla á laugardag. Alþingi ákvað hins vegar breyta tímasetningunni og hefst athöfnin klukkan hálf ellefu um morguninn. Margir hafa litið svo á að með þessu sé alþingi að reyna forðast mótmælendur. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, vísar þessu á bug og segir að ákvörðun um breyta tímasetningu hafi verið tekin á fundi forsætisnefndar í sumar og að sú ákvörðun hafi ekki tengst boðuðum mótmælum. „Þingsetningu var ekki flýtt. Þingsetning er klukkan 10.30. Hún kemur upp á laugardag að þessu sinni og þingfundir á laugardag byrja klukkan 10.30 og þannig hefur það verið síðan ég varð forseti Alþingis," segir Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Alþingi var síðast sett á laugardegi árið 2005 en þá hófst athöfnin klukkan hálf tvö. Þetta snýst sem sagt ekki um það að þingheimur sé hræddur við almenning í landinu? „Ég held að það sé enginn hræddur við almenning. Ef fólk vill mótmæla að þá mótmælir það friðsamlega og ég vonast til þess að menn geri það," segir Ragnheiður Ásta. Sú hefð hefur skapast í gegnum tíðina að lögregluþjónar standi heiðursvörð við þingsetningu en ekkert verður um slíkt í ár. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu að þetta sé gert í sparnaðarskyni. Ákvörðun þessa efnis hafi verið tekin fyrr á þessu ári, áður en úrskurður gerðardóms í laundeilu lögreglumanna lá fyrir.
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Sjá meira