Fuglaflensan komin til Evrópu 23. október 2005 15:04
Staðfest hefur verið að alifuglar sem drápust í Tyrklandi í síðustu viku voru smitaðir af fuglaflensu af hinum hættulega H5N1-stofni. Eftir því sem veiran finnst víðar aukast líkurnar á að hún stökkbreytist og smitist á milli manna. Í síðustu viku fundust 1.800 alifuglar dauðir á búgarði í norðvesturhluta Tyrklands. Óttast var að banamein dýranna væri fuglaflensa og því var ákveðið að setja héraðið í sóttkví og slátra 7.600 fuglum sem grunur lék á að væru smitaðir. Þessi ótti reyndist svo sannarlega á rökum reistur því í gær staðfesti Markos Kyprianou, sem fer með heilbrigðismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að fuglaflensa af H5N1-stofni hefði fundist í fuglunum, en sá stofn hefur lagt um sextíu Asíubúa í gröfina undanfarin misseri. Kyprianou sagði að framkvæmdastjórnin hygðist leggja einn milljarð evra, eða 73 milljarða íslenskra króna, til mótefnisgerðar og dreifingar hjálpargagna ef svo færi að flensufaraldur brytist út. Tyrknesk stjórnvöld lýstu því aftur á móti yfir í gær að tekist hefði að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu pestarinnar og hvöttu almenning til að halda ró sinni. Enn á eftir að greina veirustofninn sem fundist hefur í rúmenskum fuglum en margt bendir til að þar sé sami stofn á ferðinni. Evrópusambandið hefur því bannað innflutning á lifandi fuglum svo og kjöti og fiðri frá Rúmeníu og Tyrklandi í það minnsta í hálft ár. H5N1-stofninn smitast enn sem komið er ekki á milli manna, þeir sem smitast hafa í Suðaustur-Asíu eiga það sameiginlegt að hafa verið í náinni snertingu við fugla eða hrátt kjöt. Hins vegar vekur það sérfræðingum ugg að veiran hafi fundist í Evrópu því eftir því sem hún dreifist víðar þeim mun líklegra er talið að henni takist að stökkbreytast svo hún geti smitast manna á milli.
Erlent Fréttir Mest lesið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Fleiri fréttir Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Sjá meira