Breskt fyrirtæki kvartaði til ráðherra vegna Iceland Express Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. nóvember 2010 19:18
Bresk ferðaskrifstofa fann sig knúna til að kvarta til Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra vegna lélegra vinnubragða og framferðis Iceland Express og hvetur ráðuneytið til að rannsaka starfshætti fyrirtækisins. Í bréfinu til Katrínar segir Clive Stacey, framkvæmdastjóri bresku ferðaskrifstofunnar Discover The World, að hann hafi aldrei í 26 ára sögu fyrirtækisins þurft að skrifa til íslenskra stjórnvalda vegna framferðis íslensks fyrirtækis. Hins vegar hafi framferði Iceland Express komið óorði á góða ímynd íslenskrar ferðaþjónustu. Stacey segir að á undanförnum tveimur árum hafi viðskiptavinir ferðaskrifstofunnar fundið fyrir afar miklum óþægindum vegna fyrirtækisins. Fjölmörgum flugferðum hafi verið aflýst, mörgum með afar litlum fyrirvara. Þá hafi vegna slæmrar skipulagningar of mörgum flugferðum verið seinkað. Þá hafi flugvélar millilent á áfangastöðum eins og París án nokkurs fyrirvara sem hafi valdið farþegum miklum óþægindum. Jafnframt hafi engum skýringum verið til að dreifa frá Iceland Express eða fulltrúum fyrirtækisins eða þær verið ófullnægjandi. Erfitt að sætta sig við framferði Iceland Express „Þetta síðasta ár hefur verið óvenjulega erfitt. Ég geri mér auðvitað grein fyrir að ýmis vandamál komu upp í tengslum við gosið í Eyjafjallajökli. Við höfum fullan skilning á slíku en ég verð að segja að þótt maður undanskilji það hefur framferði Iceland Express gert það að verkum að það er mjög erfitt að sætta sig við það," segir Stacy. Stacy tiltekur í bréfi sínu að fyrirtækið hafi nú hætt að selja ferðir með vélum Iceland Express en margir viðskiptavinir eigi bókuð sæti með fyrirtækinu á næstunni. Því biður hann iðnaðarráðuneytið að rannsaka afar vafasama starfshætti fyrirtækisins. Fréttastofa reyndi ítrekað að ná tali af Matthíasi Imsland forstjóra Iceland Express til að fá viðbrögð, en hann svaraði ekki skilaboðum fréttastofu. Rétt fyrir fréttatímann í kvöld náðist loksins í Matthías Imsland, forstjóra Iceland Express. Hann segir að Iceland Express eigi í ágreiningi við Discover The World. Meðal annars hafi fyrirtækið ekki greitt reikninga frá Iceland Express. Skoða verði ásakanir fyrirsvarsmanna fyrirtækisins í ljósi þessa ágreinings.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira