Menning

Glænýr bóksölulisti: Arnaldur er kóngurinn og Yrsa drottning en Friðrik Dór er svarti folinn

Jakob Bjarnar skrifar
Arnaldur er kóngurnn, Yrsa drottningin en svarti folinn svokallaður er Friðrik Dór. Þetta er það sem lesa má út úr síðasta bóksölulista fyrir jól.
Arnaldur er kóngurnn, Yrsa drottningin en svarti folinn svokallaður er Friðrik Dór. Þetta er það sem lesa má út úr síðasta bóksölulista fyrir jól.

Að venju var góð bóksala þessa síðustu helgi fyrir jól en auðvitað verður spennandi að vita hvort dagurinn í dag muni slá öll met.

Þetta segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda, sérfræðingur Vísis í bóksölu sem nú birtir glænýjan bóksölulista. Þetta er listinn sem er mál málanna meðal bókaþjóðarinnar, ekki síst meðal útgefenda og höfunda. Bókin heldur sínu eins og áður sem vinsælasta jólagjöfin.

„Þessar síðustu sölutölur Þorláksmessu og aðfangadags lenda bara á árslistanum sem gerður verður í byrjun næsta árs svo líklegt er að uppröðun muni eitthvað breytast á efstu sætum uppsafnaða listans.“

Bryndís segist ekki vita hverju hún eigi að spá um þá sölu sem eftir kann að vera, það fer alltaf svolítið eftir því á hvaða dag vikunnar Þorláksmessa lendir.

Bryndís leiðir lesendur Vísis í gegnum refilstigu bóksölunnar en fáir þekkja sig betur þar en hún.

„Ef til vill hafa einhverjir lokið sínum gjafainnkaupum um helgina, nú þegar svo skammt er til jóla en þó má allt eins reikna með því að dagurinn í dag slái öll met. Í því góða veðri sem nú er boðið upp á eru alltaf margir sem leggja leið sína í bæinn á Þorláksmessukvöld, svona til að rekast á gamla félaga og koma sér í hátíðarskap. Þá freistast ástríðufyllstu bókaunnendurnir til að grípa eina að tvær bækur með sér, þó ekki væri nema bara fyrir sjálfan sig. Enginn vill enda bókalaus á jólanótt.“

Svarti folinn Friðrik Dór

Nefnilega. Arnaldur og Yrsa verma efstu sæti síðasta Bóksölulistans sem gerður verður fyrir jól.

„Svörtu folar þessarar síðustu og söluhæstu viku ársins eru Friðrik Dór Jónsson með matreiðslubókina Léttir réttir Frikka sem mörgum að óvörum er nú komin í 8. sæti topplistans. Það verður að teljast frábær árangur og vonandi bara hvatning fyrir Frikka að byrja strax á næstu bók.“

Og sé litið til íslenskra skáldverka, þá er það nýliðinn Dóri DNA sem tekur á stökki fram úr margreyndum og þekktari skáldum í sölu skáldsögu sinnar, Kokkáll.

„Árið hefur annars einkennst af kröftugri útgáfu, aldrei hafa fleiri íslensk skáldverk og ljóðabækur verið kynntar í Bókatíðindum og ánægjulegt hefur verið að fylgjast með hversu margir nýliðar eru að spretta fram.

Andra Snæ þykir það heldur súrt í broti að almenningur hafi meiri áhuga á keto en bók hans um loftslagsmálin.visir/vilhelm

Þetta á líka við í barnabókum, þar sem úrval íslenskra skáldverka hefur aldrei verið jafn mikið og fjölbreytt. Þetta eru sem sagt sannkölluð bókajól,“ segir Bryndís. 

Kappsfullir höfundar kúgast af keto-inu

En, ekkert er ljós án skugga. Þetta sterka íslenska skáldverkaár veldur því að sala og umfjöllun um þær fjölmörgu öndvegis þýðingar sem komið hafa út á árinu hefur ekki orðið jafn mikil og æskilegt hefði verið.

„Þá verður líka að segjast eins og er að ævisögurnar hafa oft átt betri daga. Árið 2016 voru til dæmis Heiða fjallabóndi, Ásdís Halla og Laddi öll á topp 10 listanum þessa síðustu viku fyrir jól,“ segir Bryndís og bendir á að ekki sé jafn feitan gölt að flá nú, fyrir ævisagnaritara.

„Svo strýkur það ef til vill kappsfullum metsöluhöfundum eins og Arnaldi, Andra Snæ og Gunnari Helgasyni öfugt að sjá sjálfa bókmenntaþjóðina taka Keto hormónalausnina, bók Gunnars Más Sigfússonar, fram yfir þeirra bækur í heildarsölu ársins. Holdafarið er kannski ofar í huga almennings en lausn glæpa, hlýnun jarðar og lestrargeta barna,“ segir Bryndís. Og bætir því við að við sjáum til hvernig fari í lok árs þegar bóksalan verður gerð upp.

Um listann:

Bóksölulistinn, metsölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda, hefur verið tekinn saman allt frá árinu 1995.

Listinn mælir sölu íslenskra bóka og er byggður á upplýsingum frá bóksölum, net- og dagdagvöruverslunum sem selja bækur.

Þátttakendur í gerð listans eru: A4, Bókabúð Máls og menningar, Bókabúð Þjóðminjasafnsins, Bóksala stúdenta, Bónus, Forlagsverslunin, Hagkaup, Heimkaup, Kaupfélag Skagfirðinga og Samkaup.

 

 

Bóksölulistinn 16.-22. desember 2019

Topplistinn – 20 mest seldu titlarnir    

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason   
  2. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir   
  3. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson   
  4. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson   
  5. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason   
  6. Hvítidauði - Ragnar Jónasson   
  7. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson   
  8. Léttir réttir Frikka  - Friðrik Dór Jónsson   
  9. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson   
  10. Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir   
  11. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir   
  12. Kokkáll - Dóri DNA   
  13. Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvinsson   
  14. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason   
  15. Aðventa - Stefán Máni   
  16. Saknað: íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall   
  17. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.   
  18. Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason   
  19. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring   
  20. Jakobína saga skálds og konu - Sigríður K .Þorgrímsdóttir   

 

Íslensk skáldverk

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason   
  2. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir   
  3. Hvítidauði - Ragnar Jónasson   
  4. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson   
  5. Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir   
  6. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir   
  7. Kokkáll - Dóri DNA   
  8. Aðventa - Stefán Máni   
  9. Helköld sól - Lilja Sigurðardóttir   
  10. Svínshöfuð - Bergþóra Snæbjörnsdóttir   
  11. Stelpur sem ljúga - Eva Björg Ægisdóttir   
  12. Selta, apókrýfa úr ævi landlæknis - Sölvi Björn Sigurðsson   
  13. Delluferðin - Sigrún Pálsdóttir   
  14. Staða pundsins - Bragi Ólafsson   
  15. Korngult hár, grá augu - Sjón   
  16. Boðorðin - Óskar Guðmundsson   
  17. Vetrargulrætur - Ragna Sigurðardóttir   
  18. Tími til að tengja - Bjarni Hafþór Helgason   
  19. Úr myrkrinu - Ragnheiður Gestsdóttir   
  20. Urðarköttur - Ármann Jakobsson   

 

Þýdd skáldverk    

  1. Hnífur - Jo Nesbø   
  2. Jólasysturnar - Sarah Morgan   
  3. Ströndin endalausa - Jenny Colgan   
  4. Það er fylgst með þér - Mary Higgins Clark   
  5. Glæpur við fæðingu - Trevor Noah   
  6. Gullbúrið - Camilla Läckberg   
  7. Smásögur heimsins: Afríka - Ýmsir   
  8. Endurfundirnir  - Viveca Sten og Camilla Sten   
  9. Þú - Caroline Kepnes   
  10. Síðasta stúlkan  - Nadia Murad   

 

Ljóð & limrur   

  1. Bestu limrurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrði   
  2. Til í að vera til - Þórarinn Eldjárn   
  3. Heimskaut - Gerður Kristný   
  4. Til þeirra sem málið varðar - Einar Már Guðmundsson   
  5. Leðurjakkaveður - Fríða Ísberg   
  6. Edda - Harpa Rún Kristjánsdóttir   
  7. Dimmumót - Steinunn Sigurðardóttir   
  8. Mislæg gatnamót - Þórdís Gísladóttir   
  9. Velkomin - Bubbi Morthens   
  10. Okfruman - Brynja Hjálmsdóttir   

     

Barnabækur - ljóð og skáldverk    

  1. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson   
  2. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson   
  3. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason   
  4. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.   
  5. Slæmur pabbi - David Walliams   
  6. Dagbók Kidda klaufa 11: Allt á hvolfi  - Jeff Kinney   
  7. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal   
  8. Jólasyrpa 2019 - Walt Disney   
  9. Verstu börn í heimi 3 - David Walliams   
  10. Gurra grís - ég elska þig mamma - Neville A - Mark B   

     

Barnafræði- og handbækur       

  1. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring   
  2. Fimmaurabrandarar - Fimmaurabrandarafjelagið   
  3. Kjarval - maðurinn sem fór sínar eigin leiðir - Margrét Tryggvadóttir   
  4. Fótboltaspurningar 2019 - Bjarni Þór Guðjónsson og Guðjón Ingi Eiríksson   
  5. Spurningabókin 2019 - Guðjón Ingi Eiríksson   
  6. Ég elska einhyrninga – Unga ástin mín   
  7. Hvolpasveitin - Fyrsta púslbók - Bókabeitan
  8. Brandarar og gátur - Huginn Þór Grétarsson   
  9. Hvolpasveitin – Leitið og finnið - Bókabeitan
  10. Jólaföndur -  Unga ástin mín

   

Ungmennabækur 

  1. Nornin - Hildur Knútsdóttir   
  2. Ég er svikari - Sif Sigmarsdóttir   
  3. Fjallaverksmiðja Íslands - Kristín Helga Gunnarsdóttir   
  4. Ungfrú fótbolti - Brynhildur Þórarinsdóttir   
  5. Dulmálsmeistarinn - Bobbie Peers   
  6. Villueyjar - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir   
  7. Hvísl hrafnanna 3 - Malene Sölvsten   
  8. Þrettán - Friðrik Erlingsson   
  9. Hin ódauðu - Johan Egerkrans   
  10. PAX 3 - Útburðurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson   

 

Fræði og almennt efni     

  1. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason   
  2. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson   
  3. Léttir réttir Frikka  - Friðrik Dór Jónsson   
  4. Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvinsson   
  5. Saknað - íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall   
  6. Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson   
  7. Ég elska þig PIZZA - Haukur Már Gestsson og Brynjar Guðjónsson   
  8. Fjarþjálfun - Indíana Nanna Jóhannsdóttir   
  9. Úr undirdjúpunum til Íslands - Illugi Jökulsson   
  10. Í eldhúsi Evu - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir   

 

Ævisögur     

  1. Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason   
  2. Jakobína saga skálds og konu - Sigríður K. Þorgrímsdóttir   
  3. Bréf til mömmu - Mikael Torfason   
  4. Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein   
  5. Óstýrláta mamma mín … og ég - Sæunn Kjartansdóttir     
  6. Með sigg á sálinni - Einar Kárason   
  7. Gústi - alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn - Sigurður Ægisson   
  8. HKL ástarsaga - Pétur Gunnarsson   
  9. Systa - bernskunnar vegna - Vigdís Grímsdóttir   
  10. Óstöðvandi : Sara Björk - Magnús Örn Helgason

 

Uppsafnað frá áramótum 

  1. Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon   
  2. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason   
  3. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir    
  4. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson   
  5. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason   
  6. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson   
  7. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson   
  8. Hvítidauði - Ragnar Jónasson   
  9. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.   
  10. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson   

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×