Menning

Nýr bóksölulisti: Stefnir í enn ein glæpasagna- og barnabókajól

Jakob Bjarnar skrifar
Kóngurinn. Arnaldur Indriðason hefur einokað topp bóksölulista nú í fleiri ár en menn kæra sig um að muna.
Kóngurinn. Arnaldur Indriðason hefur einokað topp bóksölulista nú í fleiri ár en menn kæra sig um að muna. Getty/Ulf Andersen

Ef rýnt er í glænýja bóksölulista frá Félagi íslenskra bókaútgefenda virðist svo vera að nú stefni í enn ein glæpasagnajólin auk þess sem barnabókahöfundar halda áfram að festa sig í sessi.

En, það þýðir ekki að göslast ábyrgðarlaust í rýni á þessum lista án þess að njóta handleiðslu sérfræðings Vísis á þessu sviði, sem er Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Fíbút.

Þessi sjarmerandi og adrealínríki tími

„Bóksala fór vel af stað um helgina, almennt held ég að jólagjafainnkaup eða að minnsta kosti bókainnkaup eigi sér nú stað fyrr en áður,“ segir Bryndís og bregður fyrir sig ljóðrænu í lýsingum sínum:

Bryndís Loftsdóttir kann að koma orðum að því varðandi bóksöluna en hún lýsir þessari tíð sem sjarmerandi og adrealínríkri.

„Þessi yfirþyrmandi en jafnframt sjarmerandi og adrealínríki siður sem algengur var fyrir 20-30 árum þegar margir hófu jólagjafainnkaupin 2-3 dögum fyrir jól er óðum að leggjast af. Þorláksmessuverslunin var hlutfallslega mun meiri þá en hún er núna, enda kannski eins gott því flestar bækur eru nú prentaðar erlendis og nær ómögulegt að bæta við eintökum á titlum sem seljast upp viku fyrir jól.“

Að sögn Bryndísar er það svo að í ár koma út 19 frumsamdar íslenskar glæpasögur en af þeim ná níu inn á listann yfir 20 mest seldu skáldsögur síðustu viku.

„Þetta er frábær árangur hjá glæpasagnahöfundum en þó verður að líta til þess að útgáfa íslenskra skáldverka hefur aldrei verið jafn mikil og í ár. Samkeppnin um hylli bókaunnenda er því hörð en líka vinsamleg því auðvitað vonast höfundar til að með góðu framboði aukist lestur.“

Arnaldur er kóngurinn sem fyrr

Bryndís gerir fastlega ráð fyrir því að sala íslenskra skáldverka verði meiri í heildina en verið hefur undanfarin ár en jafnframt að heildarsala hvers titils slái ekki endilega nein met vegna þess hve salan dreifist á marga titla.

Innflytjandi Ólafs Jóhanns Ólafssonar situr í 11. sæti topplistans.Getty/Peter Foley

Arnaldur situr sem fyrr í efsta sæti listans, aðrir glæpasagnahöfundar sem fylgja á hæla honum eru Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónasson, Stefán Máni, Lilja Sigurðardóttir og svo Svartfuglsverðlaunahafinn og yngsti höfundurinn í þessum myrkraverkahóp, Eva Björg Ægisdóttir. Hún gefur nú út sína aðra bók, Stelpur sem ljúga og hefur auk þess nýlega landað góðum útgáfusamningum erlendis, meðal annars í Frakklandi og Englandi.

Ólafur Jóhann nýtur sem fyrr vinsælda

Sé litið til fagurbókmennta þá er Innflytjandi Ólafs Jóhanns Ólafssonar mest selda bók síðustu viku. Á eftir honum koma svo Auður Jónsdóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir og nýstirnin í hópnum, Dóri DNA og Bergþóra Snæbjörnsdóttir.

Páll Baldvin mænir út um gluggann. Hann má vel við una með sína miklu bók sem er í 13. sæti á aðallista yfir bóksölu sem tekur til síðustu viku.visir/vilhelm

„Þau Dóri og Bergþóra hafa bæði hlotið frábærar viðtökur fyrir sínar fyrstu skáldsögur auk þess sem Bergþóra hlaut á dögunum tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Svínshöfuð,“ segir Bryndís.

„Að lokum má svo nefna að Auður Jónsdóttir og Dóri DNA eru systkinabörn og sambýlismaður Bergþóru, Bragi Páll Sigurðarson, er einnig að gefa út skáldsögu nú fyrir jól.“

Svo mörg voru þau orð en svona líta listarnir út, svona er staðan: 

 

Bóksölulistinn 2. – 8. desember 2019

Topplistinn – 20 mest seldu titlarnir -                       

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason     
  2. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson                
  3. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir       
  4. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson           
  5. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.                 
  6. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson      
  7. Hvítidauði - Ragnar Jónasson     
  8. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal             
  9. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason                
  10. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason     
  11. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson    
  12. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal     
  13. Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvinsson      
  14. Aðventa - Stefán Máni       
  15. Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson        
  16. Dagbók Kidda klaufa 11: Allt á hvolfi  - Jeff Kinney      
  17. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir         
  18. Saknað: íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall     
  19. Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir        
  20. Kokkáll - Dóri DNA     

             

Íslensk skáldverk                         

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason          
  2. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir       
  3. Hvítidauði - Ragnar Jónasson     
  4. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson    
  5. Aðventa - Stefán Máni       
  6. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir         
  7. Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir        
  8. Kokkáll - Dóri DNA     
  9. Helköld sól - Lilja Sigurðardóttir    
  10. Svínshöfuð - Bergþóra Snæbjörnsdóttir      
  11. Stelpur sem ljúga - Eva Björg Ægisdóttir        
  12. Delluferðin - Sigrún Pálsdóttir       
  13. Boðorðin - Óskar Guðmundsson     
  14. Staða pundsins - Bragi Ólafsson            
  15. Korngult hár, grá augu - Sjón    
  16. Selta, apókrýfa úr ævi landlæknis - Sölvi Björn Sigurðsson     
  17. Dýrbítar - Óskar Magnússon       
  18. Má þetta bara? - Hugleikur Dagsson    
  19. Urðarköttur - Ármann Jakobsson        
  20. Tími til að tengja - Bjarni Hafþór Helgason     

              

Þýdd skáldverk                        

  1. Hnífur - Jo Nesbø      
  2. Jólasysturnar - Sarah Morgan     
  3. Það er fylgst með þér - Mary Higgins Clark      
  4. Ströndin endalausa - Jenny Colgan     
  5. Stóri maðurinn  - Phoebe Locke        
  6. Eldraunin  - Jørn Lier Horst     
  7. Endurfundir á Brideshead - Evelyn Waugh    
  8. Gullbúrið - Camilla Läckberg     
  9. Þú - Caroline Kepnes        
  10. Síðasta stúlkan - Nadia Murad    

             

Ljóð & limrur                    

  1. Bestu limrurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrði     
  2. Til í að vera til - Þórarinn Eldjárn       
  3. Leðurjakkaveður - Fríða Ísberg        
  4. Edda - Harpa Rún Kristjánsdóttir      
  5. Heimskaut - Gerður Kristný       
  6. Dimmumót - Steinunn Sigurðardóttir    
  7. Til þeirra er málið varðar - Einar Már Guðmundsson        
  8. Jósefínubók - Jósefína Meulengracht Dietrich    
  9. Úr landsuðri og fleiri kvæði - Jón Helgason     
  10. Döggslóð í grasi - Kristbjörg Freydís Steingrímsdóttir    

             

Barnabækur - ljóð og skáldverk                      

  1. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson       
  2. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson      
  3. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.        
  4. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal        
  5. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason     
  6. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal     
  7. Dagbók Kidda klaufa 11: Allt á hvolfi  - Jeff Kinney      
  8. Jólasyrpa 2019 - Walt Disney     
  9. Slæmur pabbi - David Walliams    
  10. Frozen sögusafn - Walt Disney    

             

Barnafræði- og handbækur                   

  1. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring        
  2. Kjarval - maðurinn sem fór sínar eigin leiðir - Margrét Tryggvadóttir      
  3. Fimmaurabrandarar - Fimmaurabrandarafjelagið    
  4. Jólaföndur – Unga ástin mín      
  5. Ég elska einhyrninga – Unga ástin mín
  6. Hvolpasveitin - Leitið og finnið - Bókabeitan   
  7. Hvolpasveitin - Fyrsta púslbók - Bókabeitan     
  8. Spurningabókin 2019 - Guðjón Ingi Eiríksson     
  9. Fótboltaspurningar 2019 - Bjarni Þór Guðjónsson og Guðjón Ingi Eiríksson     
  10. Brandarar og gátur - Huginn Þór Grétarsson      

             

Ungmennabækur                       

  1. Nornin - Hildur Knútsdóttir      
  2. Ég er svikari - Sif Sigmarsdóttir     
  3. Ungfrú fótbolti - Brynhildur Þórarinsdóttir     
  4. Hvísl hrafnanna 3 - Malene Sölvsten        
  5. Fjallaverksmiðja Íslands - Kristín Helga Gunnarsdóttir    
  6. Villueyjar - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir    
  7. Vargöld 2 - Þórhallur Arnórsson og Jón Páll Halldórsson        
  8. Dulmálsmeistarinn - Bobbie Peers      
  9. Pax 2 - Uppvakningurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson       
  10. Hin ódauðu - Johan Egerkrans     

        

Fræði og almennt efni                 

  1. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson           
  2. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason       
  3. Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvinsson      
  4. Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson        
  5. Saknað - íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall    
  6. Í eldhúsi Evu - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
  7. Halaveðrið mikla - Steinar J. Lúðvíksson        
  8. Fjarþjálfun - Indíana Nanna Jóhannsdóttir                
  9. Prjónastund - Lene Holme Samsö        
  10. Gulur, rauður, grænn og salt: Vinsælustu réttirnir frá upphafi - Berglind Guðmundsdóttir     

             

Ævisögur                        

  1. Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason       
  2. Bréf til mömmu - Mikael Torfason           
  3. Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein        
  4. Gústi - alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn - Sigurður Ægisson       
  5. Jakobína saga skálds og konu - Sigríður K. Þorgrímsd      
  6. Óstöðvandi : Sara Björk - Magnús Örn Helgason        
  7. Halldór Ásgrímsson ævisaga - Guðjón Friðriksson      
  8. Systa - bernskunnar vegna - Vigdís Grímsdóttir       
  9. Óstýrláta mamma mín … og ég - Sæunn Kjartansdóttir        
  10. Með sigg á sálinni - Einar Kárason    

        

Uppsafnað frá áramótum – mest seldu bækur ársins                        

  1. Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon    
  2. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason     
  3. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason       
  4. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir       
  5. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson       
  6. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.        
  7. Gullbúrið - Camilla Läckberg     
  8. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson      
  9. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal        
  10. Hvítidauði - Ragnar Jónasson     

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×