Menning

Ævar og Birgitta fyrirferðarmikil á nýjum bóksölulista

Jakob Bjarnar skrifar
Birgitta og Ævar gera sér lítið fyrir og eru með tvær bækur hvort á lista, Birgitta er með tvo titla á aðallistanum.
Birgitta og Ævar gera sér lítið fyrir og eru með tvær bækur hvort á lista, Birgitta er með tvo titla á aðallistanum.
„Erfitt er að ráða mikið í listann sem nær yfir tímabilið 1. til 24. nóvember. Þær eru þó nokkrar bækurnar sem hafa verið að koma til landsins á þessu tímabili og njóta því ekki jafn margra söludaga eins og til dæmis topp höfundurinn, Arnaldur Indriðason, sem alltaf gefur sína bók út þann 1. nóvember,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda (Fibut). Hún er sem og undanfarin ár helsti sérfræðingur Vísis um vendingar í bóksölunni fyrir þessi jólin. Bóksalan er það sem allt hverfist um; listar sem allir höfundar rýna sig rauðeyga í.

Glæpasögurnar sjaldan eða aldrei fleiri

Nú liggur hann fyrir fyrsti bóksölulisti ársins. Bryndís segir að þetta sé langstærsta skáldverkaár íslenskra rithöfunda, hvort sem litið er til skáldverka, ljóða eða barnabóka.



„Það koma til að mynda út að minnsta kosti 19 nýjar íslenskar glæpasögur nú fyrir jólin þannig að í raun væri hægt að halda úti sérstökum glæpasagnalista.“

Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónasson og Arnaldur Indriðason. Öll eru þau með bækur fyrir þessi jól en að minnsta kosti 19 glæpasögur eru nú gefnar út. Arnaldur er kóngurinn og fátt virðist fá því breytt.Fréttablaðið
Þetta er í skoðun, að minnsta kosti væri vert að mati Bryndísar að tiltaka 20 mest seldu íslensku skáldverkin.

„Það eru líka svo mikil frumraunaútgáfa bæði í ljóðum og skáldverkum, ótrúlega spennandi ný kynslóð rithöfunda að spretta fram.“

Taugatitringur í útgefendum

Eins og Bryndís bendir á er jólabókaflóðið varla byrjað. Og listinn ber dám af því. Ævar Þór Benediktsson og Birgitta Haukdal ná bæði að koma tveimur titlum inn á barnabókalistann.

„Ævar Þór hefur reyndar af nógu að taka enda afkastamesti barnabókahöfundur þessarar vertíðar, með 5 nýjar bækur en næst á eftir honum er Bergrún Íris Sævarsdóttir sem gefur út 4 nýjar barnabækur í ár,“ segir Bryndís.

Listinn ætti því að taka á sig eindregnari mynd eftir viku. En á sunnudaginn verður kynnt hverjir hljóta tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna svo það má segja að það ríki svolítill taugatitringur hjá útgefendum og rithöfundum í augnablikinu.



Bóksölulistinn

Söluhæstu bækurnar 1. – 24. nóvember                           

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason     
  2. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason       
  3. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir       
  4. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson       
  5. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.        
  6. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal        
  7. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal     
  8. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson    
  9. Hvítidauði - Ragnar Jónasson     
  10. Hnífur - Jo Nesbø       
  11. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir    
  12. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson      
  13. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring
  14. Ekkert að fela - á slóð Samherja í Afríku - Helgi Seljan ofl.
  15. Slæmur pabbi - David Walliams    
  16. Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason        
  17. Prjónastund - Lene Holme Samsö        
  18. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson 
  19. Vængjaþytur vonarinnar - Margrét Dagmar Ericsdóttir  
  20. Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson        
                                 

Íslensk skáldverk                                                   

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason     
  2. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir       
  3. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson    
  4. Hvítidauði - Ragnar Jónasson     
  5. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir    
  6. Aðventa - Stefán Máni        
  7. Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir        
  8. Helköld sól - Lilja Sigurðardóttir    
  9. Kokkáll - Dóri DNA      
  10. Korngult hár, grá augu - Sjón    
                                 

Þýdd skáldverk                             

  1. Hnífur - Jo Nesbø       
  2. Ströndin endalausa - Jenny Colgan     
  3. Rauða minnisbókin - Sofia Lundberg    
  4. Fórnarmýrin - Susanne Jansson    
  5. Gauksins gal - Robert Galbraith       
  6. Það er fylgst með þér - Mary Higgins Clark      
  7. Endurfundirnir - Viveca Sten og Camilla Sten    
  8. Glæpur við fæðingu - Trevor Noah      
  9. Síðasta stúlkan - Nadia Murad    
  10. Sumareldhús Flóru - Jenny Colgan      
                                 

Ljóð & limrur                              

  1. Bestu limrurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrði
  2. Leðurjakkaveður - Fríða Ísberg        
  3. Heimskaut - Gerður Kristný       
  4. Til í að vera til - Þórarinn Eldjárn       
  5. Til þeirra er málið varðar - Einar Már Guðmundsson   
  6. Edda - Harpa Rún Kristjánsdóttir      
  7. Skáldið er eitt skrípatól - Guðbergur Bergsson og Fernando Pessoa         
  8. Velkomin - Bubbi Morthens        
  9. Úr landsuðri og fleiri kvæði - Jón Helgason     
  10. Dimmumót - Steinunn Sigurðardóttir    
                                 

Barnabækur - ljóð og skáldverk                                 

  1. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson       
  2. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.        
  3. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal        
  4. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal     
  5. Slæmur pabbi - David Walliams    
  6. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson 
  7. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason     
  8. Randver kjaftar frá - Jeff Kinney     
  9. Verstu börn í heimi 3 - David Walliams     
  10. Þín eigin saga - Draugagangur - Ævar Þór Benediktsson    
                                 

Barnafræði- og handbækur                 

  1. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring
  2. Ég elska einhyrninga – Unga ástin mín                
  3. Jólaföndur – Unga ástin mín                          
  4. Kjarval - maðurinn sem fór sínar eigin leiðir - Margrét Tryggvadóttir   
  5. Fimmaurabrandarar - Fimmaurabrandarafjelagið    
  6. Leitið og finnið – Hvolpasveitin - Bókabeitan        
  7. Hvolpasveitin - Fyrsta púslbókin - Bókabeitan        
  8. Fótboltaspurningar 2019 - Bjarni Þór Guðjónsson og Guðjón Ingi Eiríksson        
  9. Hvolpasveitin - risalitabók – Bókabeitan             
  10. Blíða og Blær - Jólalitabók - Bókabeitan                            
                                 

Ungmennabækur                              

  1. Nornin - Hildur Knútsdóttir      
  2. Fjallaverksmiðja Íslands - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  3. Ég er svikari - Sif Sigmarsdóttir     
  4. Hvísl hrafnanna 3 - Malene Sölvsten        
  5. Hin ódauðu - Johan Egerkrans     
  6. Dulmálsmeistarinn - Bobbie Peers      
  7. Pax 2 - Uppvakningurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson       
  8. Villueyjar - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir    
  9. Þrettán - Friðrik Erlingsson     
  10. Pax 3 - Útburðurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson
                                 

Fræði og almennt efni                                

  1. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason       
  2. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson      
  3. Ekkert að fela - á slóð Samherja í Afríku - Helgi Seljan
  4. Prjónastund - Lene Holme Samsö        
  5. Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson        
  6. Saknað - íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall    
  7. Tíminn sefur - Árni Einarsson    
  8. Hárbókin - Theodóra Mjöll        
  9. Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon    
  10. Lífgrös og leyndir dómar - Ólína Þorvarðardóttir     
                                 

Ævisögur                              

  1. Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason        
  2. Vængjaþytur vonarinnar - Margrét Dagmar Ericsdóttir  
  3. Stöngin út - Halldór í Henson - Magnús Guðmundsson   
  4. Gústi - alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn - Sigurður Ægisson        
  5. Halldór Ásgrímsson ævisaga - Guðjón Friðriksson      
  6. Systa - bernskunnar vegna - Vigdís Grímsdóttir       
  7. Jakobína saga skálds og konu - Sigríður K. Þorgrímsdóttir
  8. Óstýrláta mamma mín … og ég - Sæunn Kjartansdóttir   
  9. Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein        
  10. HKL ástarsaga - Pétur Gunnarsson      
                                 

Uppsafnað frá áramótum                             

  1. Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon    
  2. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason       
  3. Gullbúrið - Camilla Läckberg     
  4. Sumareldhús Flóru - Jenny Colgan      
  5. Barist í Barcelona - Gunnar Helgason       
  6. Svört perla - Liza Marklund      
  7. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason     
  8. LKL 2 - Gunnar Már Sigfússon     
  9. Á eigin skinni - Sölvi Tryggvason     
  10. Óvænt endalok - Ævar Þór Benediktsson      
 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×