Menning

Bjarni Fritzson óstöðvandi í bóksölunni

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni Fritzson er keppnismaður og það virðist ætla að fleyta honum langt í bóksölunni fyrir þessi jólin sem og þeim síðustu.
Bjarni Fritzson er keppnismaður og það virðist ætla að fleyta honum langt í bóksölunni fyrir þessi jólin sem og þeim síðustu. visir/bára dröfn

„Okkar íhaldssama þjóð er komin í jólagírinn, búin að stilla aðventuljósunum út í glugga og Arnaldi í efsta sæti bóksölulistans, engin breyting í þeim efnum,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda.



Vísir birtir nú bóksölulista fyrir þessi jólin öðru sinni. Fyrsti listinn var að einhverju leyti skældur vegna þess að bækurnar voru að berast í verslanir meðan aðrir höfðu haft tímann fyrir sér. Nú ættu flestir að vera búnir að reima á sig skóna og keppast um athyglina. Eitt breytist ekki hverju sem tautar og raular; Arnaldur Indriðason er konungurinn. Nú sem undanfarin ár og trónir á toppi lista. Fátt virðist fá því breytt.



Krimmar og barnabækur virðast vera það sem helst selst þegar árstíðin er þessi. Bryndís, en fáir ef nokkrir þekkja bóksöluna betur, tekur eitt og annað út úr því sem við blasir.



Bjarni var í viðtali hjá Gaupa í Sportpakkanum á dögunum þar sem hann ræddi bókaútgáfuna.

„Myndlistarmenn hafa margir átt farsælan ritferil en nú sjáum við hins vegar þjóðþekktan tónlistarmann tylla sér á Yrsubekkinn eða í annað sæti listans. Það er enginn annar en Jón Ólafsson með bók sína, Leikskólalögin okkar. Í bókinni má finna texta 25 þekktra leikskólalaga auk þess sem hægt er að hlusta á Jón spila öll lögin á píanó úr lítilli hljóðdós inni í bókinni. Meira að segja hægt að hækka og lækka!“



Þögn Yrsu Sigurðardóttur er í þriðja sæti listans en í því fjórða er svo nýgræðingurinn frá því í fyrra, Bjarni Fritzson með sína aðra bók um Orra óstöðvandi.



„Segja má að Bjarni sé að spila sig upp í meistaradeildina á mettíma því hann skákar nú barnabókametsöluhöfundunum Ævari Þór, Gunnari Helgasyni og Birgittu Haukdal.“

 



 

Bóksölulistinn 25. nóvember – 1. desember 2019

Topplistinn – 20 mest seldu titlarnir                              

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason     
  2. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.        
  3. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir       
  4. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson      
  5. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson       
  6. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason       
  7. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal        
  8. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson      
  9. Hvítidauði - Ragnar Jónasson     
  10. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson    
  11. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal     
  12. Ekkert að fela - á slóð Samherja í Afríku - Helgi Seljan       
  13. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir    
  14. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason     
  15. Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson        
  16. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring        
  17. Aðventa - Stefán Máni       
  18. Jólaföndur – Unga ástin mín                         
  19. Dagbók Kidda klaufa 11: Allt á hvolfi - Jeff Kinney       
  20. Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvin     
                                



Íslensk skáldverk                              

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason     
  2. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir       
  3. Hvítidauði - Ragnar Jónasson     
  4. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson    
  5. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir    
  6. Aðventa - Stefán Máni       
  7. Kokkáll - Dóri DNA     
  8. Helköld sól - Lilja Sigurðardóttir    
  9. Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir        
  10. Delluferðin - Sigrún Pálsdóttir       
  11. Korngult hár, grá augu - Sjón    
  12. Stelpur sem ljúga - Eva Björg Ægisdóttir        
  13. Staða pundsins - Bragi Ólafsson       
  14. Boðorðin - Óskar Guðmundsson     
  15. Svínshöfuð - Bergþóra Snæbjörnsdóttir      
  16. Tími til að tengja - Bjarni Hafþór Helgason     
  17. Má þetta bara? - Hugleikur Dagsson    
  18. Urðarköttur - Ármann Jakobsson        
  19. Allt hold er hey - Þorgrímur Þráinsson     
  20. Fjötrar - Sólveig Pálsdóttir     
             



Þýdd skáldverk              

  1. Hnífur - Jo Nesbø      
  2. Það er fylgst með þér - Mary Higgins Clark      
  3. Ströndin endalausa - Jenny Colgan     
  4. Gullbúrið - Camilla Läckberg     
  5. Síðasta stúlkan  - Nadia Murad        
  6. Náðarstund - Hannah Kent    
  7. Glæpur við fæðingu - Trevor Noah      
  8. Gauksins gal  - Robert Galbraith      
  9. Rauður maður - svartur maður - Kim Leine        
  10. Endurfundir á Brideshead - Evelyn Waugh    
             



Ljóð & limrur          

  1. Bestu limrurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrði     
  2. Til í að vera til - Þórarinn Eldjárn       
  3. Leðurjakkaveður - Fríða Ísberg        
  4. Úr landsuðri og fleiri kvæði - Jón Helgason     
  5. Heimskaut - Gerður Kristný       
  6. Mislæg gatnamót - Þórdís Gísladóttir       
  7. Velkomin - Bubbi Morthens        
  8. Undurfagra ævintýr 1933-2019 - Ýmsir       
  9. Dimmumót - Steinunn Sigurðardóttir    
  10. Til þeirra er málið varðar - Einar Már Guðmundsson        
 



Barnabækur - ljóð og skáldverk             

  1. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.        
  2. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson      
  3. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson       
  4. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal        
  5. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal     
  6. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason     
  7. Dagbók Kidda klaufa 11: Allt á hvolfi  - Jeff Kinney      
  8. Jólasyrpa 2019 - Walt Disney     
  9. Verstu börn í heimi 3 - David Walliams     
  10. Frozen sögusafn - Walt Disney    
             



Barnafræði- og handbækur                       

  1. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring        
  2. Jólaföndur – Unga ástin mín      
  3. Kjarval - maðurinn sem fór sínar eigin leiðir - Margrét Tryggvadóttir     
  4. Ég elska einhyrninga – Unga ástin mín 
  5. Fimmaurabrandarar - Fimmaurabrandarafjelagið    
  6. Hvolpasveitin - Fyrsta púslbók - Bókabeitan             
  7. Klár í skólann - Rósakot
  8. Brandarar og gátur - Huginn Þór Grétarsson      
  9. Spurningabókin 2019 - Guðjón Ingi Eiríksson              
  10. Fótboltaspurningar 2019 - Bjarni Þór Guðjónsson og Guðjón Ingi Eiríksson         
             



Ungmennabækur                   

  1. Nornin - Hildur Knútsdóttir      
  2. Ungfrú fótbolti - Brynhildur Þórarinsdóttir     
  3. Ég er svikari - Sif Sigmarsdóttir          
  4. Fjallaverksmiðja Íslands - Kristín Helga Gunnarsdóttir    
  5. Hvísl hrafnanna 3 - Malene Sölvsten        
  6. Villueyjar - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir    
  7. Hin ódauðu - Johan Egerkrans     
  8. Sæþokan - Camilla & Viveca Sten       
  9. Pax 2 - Uppvakningurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson       
  10. Pax 3 - Útburðurinn  - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson    
 



Fræði og almennt efni            

  1. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason       
  2. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson      
  3. Ekkert að fela - á slóð Samherja í Afríku - Helgi Seljan       
  4. Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson        
  5. Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvin     
  6. Halaveðrið mikla - Steinar J. Lúðvíksson        
  7. Saknað - íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall    
  8. Prjónastund - Lene Holme Samsö        
  9. Hárbókin - Theodóra Mjöll        
  10. Í eldhúsi Evu - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir     
 



Ævisögur                        

  1. Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason        
  2. Vængjaþytur vonarinnar - Margrét Dagmar Ericsdóttir       
  3. Bréf til mömmu - Mikael Torfason      
  4. Óstýrláta mamma mín … og ég - Sæunn Kjartansdóttir        
  5. Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein        
  6. Systa - bernskunnar vegna - Vigdís Grímsdóttir       
  7. Óstöðvandi : Sara Björk - Magnús Örn Helgason        
  8. Gústi - alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn - Sigurður Ægisson       
  9. HKL ástarsaga - Pétur Gunnarsson      
  10. Með sigg á sálinni - Einar Kárason    
 



Uppsafnað frá áramótum                         

  1. Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon    
  2. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason       
  3. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason     
  4. Gullbúrið - Camilla Läckberg     
  5. Sumareldhús Flóru - Jenny Colgan      
  6. Barist í Barcelona - Gunnar Helgason       
  7. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir       
  8. Svört perla - Liza Marklund      
  9. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.             
  10. Á eigin skinni - Sölvi Tryggvason     





Fleiri fréttir

Sjá meira


×