Bíó og sjónvarp

Segir gagnrýni á áttundu þáttaröð Game of Thrones kjánalega

Andri Eysteinsson skrifar
Nikolaj Coster-Waldau (hægri) lék hlutverk Jaime Lannister í þáttunum vinsælu.
Nikolaj Coster-Waldau (hægri) lék hlutverk Jaime Lannister í þáttunum vinsælu. Getty/ Danielle Del Valle
Áttunda og jafnframt síðasta þáttaröð HBO þáttanna Game of Thrones, sem sýndir voru á Stöð 2 fyrr á árinu, var harðlega gagnrýnd af aðdáendum víða sem sökuðu mennina að baki þáttunum um áhugaleysi og skemmdarverk.

Gengu aðdáendur svo langt að sett var af stað undirskriftasöfnun þar sem skorað var á HBO að taka þættina úr birtingu, skrifa handritið upp á nýtt og gefa út nýja þætti.

Leikarinn Nikolaj Coster-Waldau, sem lék Jaime Lannister, gefur lítið fyrir slíka gagnrýni á þáttaröðina og þá DB Weiss og Dan Benoiff. Daninn Coster-Waldau var gestur á ráðstefnunni Con of Thrones í Nashville í Tennessee á dögunum, ásamt fleiri leikurum úr þáttunum. Um gagnrýni sem þáttaröðin, Weiss og Benioff hafa hlotið sagði Costar-Waldau:

„Að nokkur skuli halda að mennirnir sem sköpuðu þættina sé ekki þeir ástríðufyllstu í ferlinu. Að halda að þeir hafi helgað þáttunum 10 ár af sínu lífi án þess að haf leitt hugan að því hvernig þættirnir skyldu enda er kjánalegt,“ sagði Coster-Waldau og bætti við að allir sem unnu að þáttunum hafi gefið allt sitt í verkefnið, til þess að búa til eins góða þætti og mögulegt var.

Sjá má umræður Coster-Waldau, Jerome Flynn (Bronn), Hönnuh Murray (Gilly), og Miltos Yerolemou (Syrio Forel), í spilaranum hér að neðan. Ummælin sem vísað er til í fréttinni heyrast eftir rúma 21 mínútu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×