Bíó og sjónvarp

Netflix pantaði langþráða Kötlu Baltasars

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hugmyndin um Kötlu-þættina hefur lengi blundað í Baltasar Kormáki.
Hugmyndin um Kötlu-þættina hefur lengi blundað í Baltasar Kormáki. vísir/getty
Vísindaskáldsöguþáttaröð leikstjórans Baltasars Kormáks, sem framleidd verður af Netflix, mun bera heitið Katla. Framleiðsla seríunnar, sem verður átta þættir, hefst á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Netflix en Kötlu-hugmynd Baltasars hefur verið lengi í þróun.

Í tilkynningu Netflix segir að íslenskt landslag verði fyrirferðarmikið í þáttunum. Serían byrjar einu ári eftir Kötlugos og fylgst verður með lífi bæjarbúa í „friðsæla smábænum Vík“, hverra líf hefur breyst mikið.

„Þeir neyðast til að yfirgefa bæinn því jökullinn nálægt eldfjallinu byrjar að bráðna. Þeir örfáu íbúar sem eftir eru ná að halda samfélaginu gangandi og þrátt fyrir frábæra staðsetningu er bærinn nánast orðinn að draugabæ. Dularfullir hlutir sem frusu djúpt inn í jökulinn fyrir löngu síðan koma nú í ljós og hafa ófyrirséðar afleiðingar.“

Katla er sköpunarverk áðurnefns Baltasars Kormáks og Sigurjóns Kjartanssonar handritshöfundi. Sigurjón, Lilja Sigurðardóttir og Davíð Már Stefánsson skrifa handritið og framleiðsla verður í höndum RVK Studios. Þættirnir verða sýndir á Netflix um allan heim en frumsýningardagur verður tilkynntur síðar.

Haft er eftir Teshu Crawford, framkvæmdastjóra þáttagerðar eftir handriti hjá Netflix í Norður-Evrópu, að þau hjá Netflix séu spennt að sýna stórbrotið íslenskt landslag í íslenskri sögu.

„Að fá líka tækifæri til að vinna með þeim mikla listamanni sem Baltasar er gerir þetta verkefni fullkomið fyrir okkur. Við bíðum spennt eftir því að sjá og heyra söguna á skjánum og geta svo sýnt áskrifendum okkar um allan heim.“

Ljóst er að Katla Baltasars á sér nokkuð langan aðdraganda, þó að hugmyndin virðist hafa tekið nokkrum breytingum í gegnum tíðina. Baltasar ræddi fyrirætlanir sínar um sjónvarpsþáttaröðina Kötlu í Íslandi í dag árið 2014 og var frumsýningardagur þá fyrirhugaður árið 2016, í samvinnu við Stöð 2 og RVK Studios. Þáttunum var lýst sem „spennuþáttaröð með mystísku ívafi um unga björgunarsveitakonu sem tekst á við drauga fortíðar í miðjum langvarandi nátturuhamförum.“

Árið 2017 sagði Baltasar í kvöldfréttum Stöðvar 2 að þættirnir væru komnir langt og að búið væri að skrifa fyrsta þáttinn. Þá sagði hann þættina myndu „daðra við sci-fi“.

Í síðasta mánuði tilkynnti Baltasar svo loks að Netflix hefði pantað vísindaskáldsöguþáttaröð úr smiðju hans. Nafn seríunnar var ekki gefið upp en fram kom í máli Baltasars að tökur ættu að hefjast í apríl á næsta ári. Reiknað væri með að þáttaröðin færi í sýningar á fyrsta ársfjórðungi 2021.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×