Bíó og sjónvarp

Þykist vita um á­stæðu lítilla vin­sælda Shaws­hank Redemption framan af

Atli Ísleifsson skrifar
Tim Robbins fór með hlutverk Andy Dufresne í kvikmyndinni Shawshank Redemption.
Tim Robbins fór með hlutverk Andy Dufresne í kvikmyndinni Shawshank Redemption. Getty
Bandaríski leikarinn Tim Robbins segir að hann þykist vita um helstu ástæðu þess að kvikmyndin Shawshank Redemption frá árinu 1994 hafi ekki notið mikilla vinsælda þegar hún fyrst kom út.

Robbins ræðir um myndina í viðtali við Entertainment Weekly í tilefni af því að aldarfjórðungur er nú frá því að myndin kom út.

Myndin byggir á sögu Stephen King og var bíóaðsóknin ekki góð þegar hún kom fyrst út. Viðhorf fólks til myndarinnar breyttist hins vegar fljótt og eftir því sem lengra leið frá frumsýningu. Er myndin nú talin klassík og skipar þannig efsta sæti á lista Imdb yfir bestu kvikmyndir allra tíma.

Nú segir Robbins að hann telji sig vita ástæðu þess að myndin hafi ekki skilað miklu í kassann framan af. Það hafi einfaldlega verið titill myndarinnar – The Shawshank Redemption.

„Þegar myndin kom út, og hún skilaði ekki miklu í miðasölu í kvikmyndahúsum, þá voru nokkrar skýringar gefnar. „Sko, það er titillinn, það man enginn titilinn“,“ segir Robbins í samtali við EW.

„Og það er vit í því líka, þar sem í mörg ár eftir að myndin kom út, kom fólk upp að mér og sagði, „Þú veist, ég var mjög hrifinn af þér í myndinni Scrimshaw Reduction eða Shimmy, Shimmy, Shake eða Shankshaw“. Það voru svo mörg dæmi um hvernig fólk fór rangt með.“

Robbins fór með aðalhlutverk í myndinni ásamt Morgan Freeman. Sagði þar frá sögu Andy Dufresne og afplánun hans í fangelsi eftir að hafa verið ranglega dæmdur fyrir morð.


Tengdar fréttir

Týnd atriði úr Shawshank Redemption

Í klippu með fréttinni sjáum við Tim Robbins og Morgan Freeman grínast með titil myndarinnar, leikstjórann Darabont að útskýra leikaravalið og tvær senur sem voru klipptar úr myndinni,






Fleiri fréttir

Sjá meira


×