Fótbolti

Segja kínverskt félag vera að bjóða Bale 156 milljónir króna í vikulaun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gareth Bale vann þennan glæsilega bikar fjórum sinnum með Real Madrid.
Gareth Bale vann þennan glæsilega bikar fjórum sinnum með Real Madrid. Getty/ Etsuo Hara
Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid, talaði um það um helgina að Gareth Bale væri kominn hálfa leið út um dyrnar hjá Real Madrid því spænska félagið væri búið að finna kaupanda. Nú lítur út fyrir að Bale sé á leiðinni til Kína en ekki til Englands.

Telegraph segir frá áhuga kínverska félagsins Beijing Guoan á að kaupa Gareth Bale frá Real Madrid og gera hann um leið að launahæsta fótboltamanninum í sögu kínverska fótboltans.



Góð laun Gareth Bale hjá Real Madrid, um 600 þúsund pund á viku eða 94 milljónir íslenskar, eru hluti af vandamáli spænska félagsins nú þegar Zinedine Zidane við losna við velsku stjörnuna.

Það eiga fá félög möguleika á að greiða þessu laun. Kínverjarnir ætla hins vegar að koma til bjargar því þeir ætla að gera meira en að greiða Bale þessi laun.

Beijing Guoan er sagt tilbúið að borga Gareth Bale eina milljón pund á viku eða 156 milljónir íslenskra króna í vikulaun. Sú tala kom fram í frétt Mirror um tilboð Kínverjanna.

Beijing Guoan er eitt ríkasta félagið í Asíu og þeir eru nýbúnir að kaupa Cedric Bakambu frá Villarreal en hann er sagður frá 300 þúsund pund í vikulaun eða 47 milljónir íslenskra króna.



Launahæsti leikmaður kínversku deildarinnar í dag er Argentínumaðurinn Ezequiel Lavezzi sem Football Leaks segir að fái í 798 þúsund pund í vikulaun frá félaginu Hebei China Fortune eða 125 milljónir íslenskra króna. Carlos Tevez fékk 650 þúsund pund í vikulaun, 102 milljónir króna, frá Shanghai Shenhua á sínum tíma.

Gareth Bale hefur spilað með Real Madrid síðan að spænska félagið keypti hann fyrir 86 milljónir punda frá Tottenham árið 2016. Hann hefur unnið Meistaradeildina fjórum sinnum með félaginu.

Af einhverjum ástæðum þá vill Zinedine Zidane ekki sjá hann og er ekkert að fela það. Umboðsmaður Bale, Jonathan Barnett, sagði það skammarlegt hvernig Frakkinn talaði um skjólstæðing sinn miðað við hvað Bale hefur gert fyrir Real Madrid á þessum sex árum.

Það er athyglisvert að velta fyrir sér hvað 156 milljónir króna á viku er mikill peningur. Bale fengi þá 22 milljónir á hverjum degi, 933 þúsund krónur á hverjum klukkutíma og 15 þúsund og fimm hundruð krónur fyrir hverja einustu mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×