Rannsaka 21 dauðsfall eftir að maður reyndi að eitra fyrir samstarfsmanni Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2018 23:04 Vísir/Getty
Lögregla í Þýskalandi rannsakar nú 21 dauðsfall starfsmanna fyrirtækis í vesturhluta landsins eftir að starfsmaður náðist á myndavél við að eitra hádegisverð samstarfsfélaga síns. Lögregla hefur handtekið 56 ára karlmann vegna gruns um að hafa reynt að drepa samstarfsfélaga sinn í bænum Schloss Holte-Stukenbrock í Norðurrín-Vestfalíu. Í frétt Reuters kemur fram að lögregla hafi ekki nafngreint hinn grunaða, samstarfsmann hans eða fyrirtækið sem um ræðir. Samstarfsmaður hins grunaða hafði tekið eftir einhverju grunsamlegu í hádegisverði sínum og þá gert yfirmönnum og lögreglu viðvart. Á myndbandsupptökum sást svo hinn grunaði vera að dreifa dufti yfir mat samstarfsfélagans. Leiddu rannsóknir í ljós að duftið hefði getað valdið alvarlegum líffæraskaða. Við húsleit á heimili mannsins fann lögregla svo ýmis efni, meðal annars nokkurt magn kvikasilfurs, blýs og kadmíums. Frekari rannsóknir leiddu svo í ljós 21 tilfelli aftur til ársins 2000 þar sem starfsmenn umrædds fyrirtækis sem nálguðust eftirlaunaaldur höfðu látið lífið af völdum krabbameins eða hjartaáfalls. Segja sérfræðingar að eitrun af völdum þungamálma hefði geta leitt til dauða fólksins. Lögregla segir ekkert liggja fyrir um ástæður hins grunaða fyrir að hafa eitrað fyrir samstarfsmanni sínum. Hinn grunaði hafi ekkert viljað tjá sig um þær ásakanir sem á hann eru bornar.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira