Segja Barca, Real og PSG öll vilja gera Salah að dýrasta leikmanni heims Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2018 10:00 Mohamed Salah. Vísir/Getty
Mohamed Salah hefur raðað inn mörkum á sínu fyrsta tímabilið með Liverpool og það hefur að sjálfsögðu kallað á sögursagnir um mikinn áhuga á leikmanninum frá stærstu félaga heims. Eftir fernuna á móti Watford um helgina hefur sú umræða aðeins aukist og í morgun slær The Sun því upp að Barcelona, Paris Saint-Germain og Real Madrid séu öll tilbúin að borga 200 milljónir punda fyrir egypska framherjann. Samkvæmt þessu gæti heimsmet Neymar verið í hættu og Mohamed Salah orðið dýrasti knattspyrnumaður heims innan nokkurra mánaða.EXCLUSIVE: Mohamed Salah wanted in record £200m deal https://t.co/yACn4NHD5ipic.twitter.com/EawAu9BhzL — The Sun Football ⚽ (@TheSunFootball) March 20, 2018 Mohamed Salah er enn bara 25 ára gamall og hann á fjögur ár eftir af samningi sínum við Liverpool. Eftir vonbrigðin hjá Chelsea þá hefur hann talað um ákveðni sína að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina og standa sig. Mohamed Salah er þegar kominn með 37 mörk í 43 leikjum í öllum keppnum og 28 af mörkunum hafa komið í ensku úrvalsdeildinni. Hann er búinn að sanna sig í enska boltanum og gott betur en það. Jürgen Klopp varð þvingaður til að selja Philippe Coutinho til Barcelona í janúar og Liverpool segist ekki ætla að selja Salah. Klopp er að reyna að byggja upp nýtt meistaralið á Anfield og það mun ganga mjög hægt ef hann þarf svo alltaf að selja sína bestu leikmenn. Liverpool keypti Mohamed Salah á 34,3 milljónir punda frá Roma síðasta sumar en þetta eru að breytast í ein bestu kaup allra tíma. Ef félagið selur Salah fyrir 200 milljónir í sumar þá væri hann búinn að nær sexfaldast í verði. Samkvæmt frétt The Sun þá reikna Barcelona, Paris Saint-Germain og Real Madrid öll með því að eigendur Liverpool gæti ekki staðist freistinguna að selja framherjann sjái þeir fram á svo mikinn gróða á aðeins einu ári.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira