Aukning í sölu á vændi hér á landi Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar 12. júlí 2018 21:18 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að vændi hafi aukist hér á landi á undanförnum árum og oft sé erfitt að bregðast við ábendingum þegar slík starfsemi fer fram í Airbnb íbúð. Vísir/Stöð 2
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að vændi hafi aukist hér á landi á undanförnum árum og oft sé erfitt að bregðast við ábendingum þegar slík starfsemi fer fram í Airbnb íbúð. Við greindum frá því í fréttum okkar í gær að gjörningalistakonan Elín Signý hefði verið tíu mínútur að finna tæpar þúsund starfandi vændiskonur á Íslandi. Lögreglan segir þetta vissulega veruleikann en erfitt sé að lesa í fjöldann sem stundar starfsemina hér á landi. „Við erum kannski ekki að sjá þessar tölur sem að hún er að vitna þarna í. En það sem að við sjáum er að hingað eru að koma konur til að stunda þessa starfsemi og þær kannski staldra við í tvær vikur til mánaðar. Þá setja þær inn auglýsingu en hvort að hún sé tekin út aftur skýrir kannski þennan fjölda sem eru inni á þessum síðum. Þetta er eitthvað sem við höfum verið að sjá aukningu í og það síðustu árin í ljósi aukins ferðamannastraums hingað til lands,“ segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn um málið. Fréttastofa hefur heyrt í fólki sem varð uppvísa að vændi í gegnum Airbnb íbúð nágranna síns. Þau upplifðu að lögreglan gæti lítið gert. Lögreglan segir þetta snúið. „Við förum og könnum málið og getum alltaf gripið inn í ef að ljóst er að þarna sé einhver starfsemi í gangi sem að snýr að vændisstarfsemi. Það gerum við það, við höfum ýmsar heimildir til þess en við þurfum að rökstyðja okkar aðgerðir,“ segir hann. Lögreglan bendir á að þeir sem stunda sölu vændis eru ekki sakborningar í málinu heldur njóti réttarstöðu vitnis. „Þeir sem að bjóða eða eru að bjóða þjónustu hafa oft á tíðum ekki viljað koma í samstarf við lögreglu. Þetta byggist svolítið á því hvað viðkomandi vill gera svo við getum aðstoðað og hjálpað. Það er okkar markmið í þessum málum, að aðstoða viðkomandi út úr því sem hann er kominn í.“
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Játar innbrot í búin Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira