Tapið gegn United kostaði City þrjár vikur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 8. apríl 2018 10:45 Vincent Kompany tók við Englandsbikarnum 2014 en síðan hefur Manchester borg ekki eignast Englandsmeistara.
Manchester City mistókst að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn í gær þegar liðið tapaði fyrir erkifjendunum í Manchester United á heimavelli. Hefði liðið farið með sigur væri titillinn þeirra og City hefði þar með orðið fljótasta liðið í sögu úrvalsdeildarinnar til þess að vinna bikarinn eftirsótta. Manchester United á það met. United er eina liðið sem hefur unnið deildina þegar fimm umferðir eru eftir. Það gerði United árið 2001 með 4-2 sigri á Coventry City. City getur hins vegar jafnað met United um næstu helgi. Þá fer City á Wembley og mætir Tottenham laugardaginn 14. apríl. Sigur í þeim leik er þó ekki nóg til þess að þeir bláklæddu geti fagnað þriðja titlinum á síðustu sex árum. Aftur verður það í höndum United að stöðva titilfögnuð City. Til þess að þeir bláklæddu verði meistarar þarf City að vinna Tottenham og United þarf að tapa fyrir botnliði West Bromwich Albion. WBA hefur ekki unnið United síðan í mars 2016 og hefur þar fyrir utan aðeins unnið þrjá leiki á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni. Því verður að teljast ólíklegt að City nái að fagna tilinum um komandi helgi Ef bæði United og City vinna alla þá leiki sem liðin eiga eftir í deildinni mun City geta fagnað Englandsmeistaratitlinum með sigri á West Ham 29. apríl. Tapið fyrir United í gær kostaði því City að öllum líkindum þrjár vikur í bið eftir titlinum.
Enski boltinn Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Íslenski boltinn Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Íslenski boltinn Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Íslenski boltinn Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Undanúrslit Meistaradeildarinnar hefjast Sport Fleiri fréttir Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Sjá meira