Fylkir skellti FH Magnús Ellert Bjarnason skrifar 11. febrúar 2018 22:15 Vísir / Ernir
Þrír leikir fóru fram í dag í fyrstu umferð A- deildar Lengjubikarsins. Hæst bar að leik pepsi-deildar liðanna FH og Fylkis í riðli 4. Leikurinn var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4 og er honum nýlokið. Fyrri hálfleikur var opinn og skemmtilegur og skiptust liðin á að sækja. Árbæingar komust yfir á 12. mínutu og var Hákon Ingi Jónson þar að verki. Hinn skoski Steve Lennon jafnaði metin stuttu síðar fyrir Hafnfirðinga eftir klaufagang í vörn Fylkis. Fleiri mörk litu ekki dagsins ljós í fyrri hálfleik og var staðan því jöfn, 1-1, þegar að liðin gengu til búningsherbergja. Það leit allt út fyrir það að liðin myndu skipta með sér stigunum en Ragnar Bragi Sveinsson var á öðru máli. Skoraði hann sigurmarkið fyrir Fylki á 88. mínútu eftir laglega sendingu Hákons Inga. Fylkir tyllir sér því á topp riðils 4 en FH eru á botninum án stiga. Fyrr í dag unnu norðanmenn í KA þægilegan sigur á liði Magna frá Grenivík, 2-0. Leika þau lið í riðli 2 í A- deild Lengjubikarsins. Markaskorar KA voru táningarnir Sæþór Olgeirsson (19) og Daníel Hafsteinsson (18). Þá unnu tíu leikmenn Hauka Leikni Reykjavík í Egilshöll, 4-1, í riðli 3. Daði Snær Ingason, 19 ára, kom inná í liði Hauka og skoraði síðustu tvö mörk þeirra.
Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn NFL-stjarna giftist heimsmeistara Sport „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Rændir í miðju lyfjaprófi Handbolti Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Enski boltinn Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti „Vildi að pabbi væri hérna“ Körfubolti Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Fótbolti Fleiri fréttir Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Skoraði fyrsta löglega rangstöðumarkið Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Segja að há lestarfargjöld muni hafa „lamandi áhrif“ á HM „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ Orri klikkaði í vítakeppninni en varð samt bikarmeistari „Ég elska það sem ég er að gera“ Sjá meira