Stungið upp á víkingaklappinu til að rífa upp stemmninguna á Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2018 10:00 Það er oft svolítið rólegt í stúkunni á Old Trafford. Myndi íslenska víkingaklappið breyta því? Vísir/Getty
Forráðamenn Manchester United leita nú leiða til að fá meiri stemmningu á heimaleiki Manchester United á Old Trafford. Það er fullt af fólki sem mætir á völlinn á leiki liðsins en það vantar töluvert upp á að þar sem sami stuðningurinn við liðið og á árum áður. Það þykir vera alltof „hljótt“ og alltof rólegt á áhorfendapöllunum og það er ekki af því að Manchester United liðið er að svæfa stuðningsmenn sína með varnarsinnuðum leik. Vandamálið liggur í almennu stemmningsleysi á áhorfendapöllunum. Það virðist vera sem að „rækjusamlokurnar“ sem Roy Keane talaði um fyrir löngu síðan séu nú búnar að drepa niður alla stemmningu á vellinum. En hvað er til ráða? James Waterhouse tók forráðamenn Manchester United á orðinu og setti saman lista með tillögum til úrbóta á BBC. Þar kennir ýmissa grasa. Það sem okkur Íslendingum þykir fróðlegast að sjá á þessum lista með fimm tillögum er eflaust tillaga númer fjögur.BBC News - Manchester United: Five fun ways to create more atmosphere at Old Trafford https://t.co/yfQvjw6CjK — Richard Lewis (@RichardLewis33) March 22, 2018 Þegar Waterhouse var búinn að leggja til að Old Trafford taki upp klappstýrur, vuvuzela-lúðurinn og bílastæðapartý fyrir utan leikvanginn þá var komið að því að mæla með því að stuðningsmenn Manchester United fari að taka upp íslenska víkingaklappið á leikjum liðsins í leikhúsi draumanna. „Víkingaklappið var ekki aðeins eitt af eftirminnilegustu ímyndum Evrópukeppninnar í Frakklandi heldur hjálpaði það líka íslenska landsliðinu að komast í átta liða úrslitin,“ skrifar James Waterhouse og bætir við: „Víkingaklappið hjálpaði líka íslensku stuðningsmönnunum að vera tilefndir sem stuðningsmenn ársins hjá FIFA og næstum því tíu prósent íslensku þjóðarinnar tók þátt í víkingaklappinu þegar íslenska landsliðið kom heim frá EM.“ Það má sjá allar tillögurnar og umfjöllun um þær með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira