75% Bandaríkjamanna skilja ekki muninn á staðreynd og skoðun Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 19. júní 2018 14:35 Svo virðist sem auðvelt sé að lauma skoðunum og staðreyndavillum framhjá lesendum, það finnst mér slæmt. Vísir/Getty
Aðeins um fjórðungur fullorðinna Bandaríkjamanna getur fyllilega greint á milli staðreynda og skoðana í fréttum samkvæmt nýrri könnun. Það var rannsóknarstofnunin Pew sem gerði könnunina en hún náði til rúmlega fimm þúsund Bandaríkjamanna yfir 18 ára aldri. Þátttakendur fengu lista yfir tíu fullyrðingar þar sem fimm voru staðreyndir en fimm lýstu persónulegri skoðun þess sem skrifar. Þeir voru síðan beðnir um að flokka þessar fullyrðingar eftir því hvort þær lýstu staðreyndum eða huglægu mati. Sem dæmi má nefna staðreyndir á borð við: „Velferðarmál og heilbrigðiskerfið eru stærstu útgjaldaliðir ríkissjóðs“ og skoðanir á borð við: „Lýðræði er besta stjórnarfar sem völ er á.“ Aðeins 26% aðspurðra reyndust geta greint þarna á milli í flestum eða öllum tilfellum. Nánast sama hlutfall, um 25%, klúðraði prófinu gjörsamlega og sneri nánast öllum staðreyndum og skoðunum algjörlega við. Könnunin er hugsuð sem innlegg í umræðu um falsfréttir og hversu auðvelt sé að blekkja kjósendur og almenning. Þegar niðurstöðurnar eru greindar frekar kemur í ljós að þeir sem fylgdust mikið með stjórnmálum, notuðu internetið að staðaldri til fréttaöflunar og lásu mikið af fréttum voru mun betri í að sigta staðreyndir frá skoðunum en aðrir. Reynsla af netmiðlum og stjórnmálaumræðu almennt virðist því vega þungt en einnig er mögulegt að þar sé fylgni án beins orsakasamhengis.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira