Ungur Íslendingur vekur athygli í barnaliði Barcelona Arnar Geir Halldórsson skrifar 1. apríl 2018 18:45 Framganga Daníels Tristan Guðjohnsen vakti athygli Marca, stærsta dagblaðs Spánar. Skjáskot/Marca
Daníel Tristan Guðjohnsen er ungur Íslendingur sem er byrjaður að láta til sín taka í yngri liðum spænska stórveldisins Barcelona en spænski fjölmiðillinn Marca skrifaði grein um þennan 12 ára gamla dreng í kjölfar frammistöðu hans á Danone Nations Cup. Danone Nations Cup er eitt stærsta fótboltamót heims fyrir 10-12 ára drengi og þar hefur Daníel Tristan farið mikinn á undanförnum dögum. Líkt og nafnið gefur til kynna á Daníel Tristan ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileikana því hann er yngsti sonur goðsagnarinnar Eiðs Smára Guðjohnsen sem gerði garðinn frægan með aðalliði Barcelona á árunum 2006-2009. Í umfjöllun Marca segir að Daníel Tristan leiki í stöðu sóknarmanns og hann sé í algjöru lykilhlutverki hjá U-12 ára liði Barcelona auk þess að vera fyrirliði liðsins. Hann er öflugur í loftinu og með gífurlegan skotkraft en hann hefur skorað sex mörk í tveimur leikjum á mótinu. Annar leikmaður sem vakið hefur athygli á mótinu er Ethan Mbappe sem leikur með PSG en hann er yngri bróðir frönsku stórstjörnunnar Kylian Mbappe. Eldri bræður Daníels þykja einnig efnilegir knattspyrnumenn. Sá elsti, Sveinn Aron leikur með Breiðabliki í Pepsi-deildinni og Andri Lucas er á mála hjá Espanyol en báðir hafa þeir komið við sögu hjá yngri landsliðum Íslands. Smelltu hér til að lesa umfjöllun Marca sem hefur einnig að geyma myndband af kappanum.
Fótbolti Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira