Allardyce: Vorum óheppnir Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. apríl 2018 14:30 Lukkudísirnar voru ekki með stóra Sam í dag. Vísir/Getty
Sam Allardyce segir sína menn hafa verið óheppna að taka ekki fyrsta sigurinn gegn Liverpool í átta ár þegar liðin mættust á Goodison Park í hádeginu. Leiknum lauk með markalausu jafntefli en Everton átti nokkur hættuleg marktækifæri á síðustu mínútum leiksins. „Þegar þú klárar leik eins sterkt og við gerðum og setur pressu á Liverpool þá er hægt að segja að við höfum verið óheppnir. Sérstaklega með skallan frá Cenk Tosun og færi Dominic Solanke,“ sagði Allardyce eftir leikinn. „Við lögðum upp með að loka á sóknarafl Liverpool og búa okkur til færi. Þegar þú misnotar færin þá eru það ákveðin vonbrigði. Ef við hefðum nýtt færin værum við að horfa á allt annan leik.“ „Við spiluðum mun betur í seinni hálfleik, mættum Liverpool og sóttum á þá í stað þess að verjast of varfærnislega.“ Wayne Rooney var tekinn af velli eftir 57 mínútur og var mjög ósáttur með þá ákvörðun Allardyce. „Við þurftum ferskar lappir. Ef við hefðum ráðið ferðinni síðasta korterið hefðum við getað unnið. Svona er fótboltinn. Wayne er skiljanlega vonsvikinn en ég tek ákvarðanirnar og ég tel okkur hafa gert rétt í skiptingunum í dag,“ sagði Sam Allardyce.
Enski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Sjá meira