Mourinho var einu sinni snillingur en núna eru aðferðir hans bara gamaldags Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2018 08:30 Jose Mourinho. Vísir/Getty
Chris Sutton, fyrrum framherji Chelsea og Blackburn, gagnrýnir aðferðir knattspyrnustjóra Manchester United og er á því að persónuleiki Jose Mourinho hafi breyst. Ian Wright gæti ekki hugsað sér að spila fyrir portúgalska stjórann í dag. Chris Sutton var gestur Monday Night Club á BBC og fór yfir stöðuna hjá Manchester United sem féll út fyrir Sevilla í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. „Mourinho í dag er allt annar persónuleiki en sá heillandi maður sem við sáum fyrst árið 2004. Núna stendur hann í asnalegu og perónulegu orðaskaki í tíma og ótíma,“ sagði Chris Sutton. „Er þetta sorgleg staða fyrir Manchester United eins staðan er núna? Svarið er nei,“ sagði Sutton og hélt áfram. „Ég spyr bara hvort að þetta staðan sem Mourinho sættir sig við? Að enda í öðru sæti á eftir Manchester City og keppa ekki um stóru bikarana. Þetta er búið að setja hann út af laginu,“ sagði Sutton.Manchester United manager Jose Mourinho is "looking outdated. Former Chelsea striker Chris Sutton says his personality has changed. More: https://t.co/U8ofNV0Z1Ypic.twitter.com/bmlfW3j7bw — BBC Sport (@BBCSport) March 19, 2018 „Núna horfir hann yfir borgina og sér hvernig fótbolta City og svo Liverpool eru að spila. Þetta er maður sem var talinn vera snillingur þegar hann kom hingað fyrst. Núna líta aðferðir hans bara út fyrir að vera gamaldags miðað við hvernig fótbolta hans lið spilar í dag,“ sagði Sutton. Hinn 55 ára gamli Jose Mourinho hefur unnið enska meistaratitilinn þrisvar sinnum með Chelsea. Hann tók við starfinu hjá Manchester United af Louis van Gaal í maí 2016. Manchester United vann enska deildabikarinn og Evrópudeildina á hans fyrsta tímabili með liðið. Ian Wright, fyrrum leikmaður Arsenal, segir að hann myndi ekki vilja spila fyrir Jose Mourinho í dag. „Ég veit ekki hvað kom fyrir hann. Manchester United náði í Mourinho til að koma félaginu aftur í hæstu hæðir. Hann hefur eytt miklum peningi í leikmenn en núna tekst honum bara að rífast við alla,“ sagði Ian Wright.
Enski boltinn Mest lesið Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Orri á skotskónum Fótbolti Russell á ráspól í Kanada Formúla 1 Kane með þrennu í úrslitaleik Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Körfubolti Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Fleiri fréttir Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Jason Daði fer frá Grimsby Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Sjá meira