Manchester United lætur undan pressunni og stofnar loksins kvennalið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2018 09:00 Stuðningsmaður Manchester United. Nú fá stelpurnar tækifæri að spila fyrir félagið. Vísir/Getty
Fótboltastelpur heimsins hafa hingað til geta dreymt um að spila fyrir Barcelona, Chelsea, Arsenal, Manchester City og Liverpool en aldrei fyrir Manchester United. Nú mun það breytast. Manchester United hefur fengið á sig talverða gagnrýni undanfarin ár fyrir að vilja ekki vera með kvennalið. Nú virðast forráðamenn félagsins hafa loksins látið undan pressunni. Manchester United hefur nú sótt um að setja á laggirnar atvinnumannalið hjá konunum. Enska sambandið mun tilkynna það í lok maí hvort liðið fá leyfið. Manchester United hefur starfrækt unglingalið hjá stelpunum en þegar þær eldast þá hafa þær þurft að yfirgefa félagið því það var ekkert meistaraflokkslið. Þetta þótti mörgum mjög skrýtið og Manchester United hefur verið harðlega gagnrýnt.Manchester United have applied to have a professional women's team https://t.co/qbdDBAUm8Dpic.twitter.com/Q6bFapoinI — BBC Sport (@BBCSport) March 21, 2018 Einn af þeim sem hefur rætt þetta mál er Phil Neville, núverandi þjálfari enska kvennalandsliðsins og fyrrum leikmaður Manchester United. Þegar hann tók við enska landsliðinu þá sagðist hann ætla að ræða málið við félagið. Það hefur ekki minnkað pressuna á Manchester United að nágrannar þeirra í Manchester City hafa á sama tíma sett saman eitt besta kvennalið heims. Manchester City er því með gott forskot á Manchester United í dag í kvennaboltanum en það verður fróðlegt að sjá hversu lengi og hvort það takist yfir höfuð hjá Manchester United að búa til heimsklassa kvennalið. Nýja kvennaliðið hjá Manchester United mun hafa aðsetur á Cliff-æfingasvæðinu í Salford. Ef allt gengur eftir mun það byrja að spila í ensku B-deildinni tímabilið 2018-19. Ed Woodward, varastjórnarformaður Manchester United, segir að kvennaliðið muni vera byggt upp af sömu gildum og karlalið félagsins. Það eru góðar fréttir fyrir þá sem vilja sjá Manchester United tefla fram öflugu kvennaliði líka.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira