Kvennaboltinn breyst til batnaðar: Fékk notaða búninga og skó frá Marc Overmars Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. mars 2018 11:00 Marc Overmars notar sömu skóstærð og Alex Scott. Það hentaði henni vel. vísir/getty
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna og í tilefni þess fékk Sky Sports þrjár framakonur úr enska kvennafótboltanum til að segja frá hvernig hann hefur breyst í gegnum tíðina. Enski kvennaboltinn hefur breyst til batnaðar og það hratt á undanförnum árum en mikið hefur verið lagt í úrvalsdeildina þar í landi og einnig kvennalandsliðið sem er eitt það besta í heimi í dag. Það er þó ekki langt síðan stelpurnar fengu notaða búninga og meira að segja notaða skó eins og Alex Scott, fyrrverandi landsliðsmiðvörður Englands (140 landsleikir) segir frá.Var bara draumur „Kvennaboltinn er á frábærum stað í dag en það eru bara 10-15 ár síðan við æfðum aðeins tvisvar í viku og fengum notaða búninga,“ segir Scott sem er 33 ára gömul og kom inn í aðalið Arsenal árið 2002 eftir að vera þar sem táningur. „Stelpum sem virkilega langaði að verða fótboltamenn vissu varla af félögum þar sem það var í boði. Það var bara heppni ef eitthvað lið kom auga á mann. Nú er þetta úti um allt. Það er til vegur í átt að atvinnumennskunni. Maður þarf bara að fara á netið, skrá sig í lið og ef allt gengur upp getur maður orðið atvinnumaður. Þegar ég var að alast upp var það bara draumur,“ segir Scott. Þetta er allt annar heimur en um aldamótin þegar að Scott og fleiri stelpur á hennar aldri voru að komast inn í aðalliðin hjá sínum félögum á Englandi. Þá fengu stelpurnar ekki einu sinni skó til að spila í nema kaupa þær sjálfar.Overmars í sömu stærð „Ég var heppin hjá Arsenal. Við vorum ekki með styrktaraðila sem skaffaði okkur takkaskóm en Vic Akers, sem er búningastjóri Arsenal enn í dag, gaf mér alltaf gömlu skóna hans Marc Overmars,“ segir Scott en hollenski landsliðsmaðurinn spilaði með Skyttunum frá 1997-2000. „Við notuðum sömu stærð. Ég var alltaf svo þakklát fyrir allt svona en í dag þá fá allir leikmenn skó frítt frá styrktaraðilum og þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af svona málum.“ „Þessa stundina er kvennaboltinn í flottum málum en við megum ekki bara hætta og gera ekki neitt. Við verðum að halda áfram að spyrja spurninga og biðja um meira. Það er svo margt eftir ógert er varðar samningsmál, markaðsmál og fjölmiðlamál,“ segir Alex Scott.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Sjá meira