Pochettino vorkennir „bestu dómurum Evrópu“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. mars 2018 07:45 Við fengum mikið að sjá nærmynd af Paul Tierney hlusta á rödd í eyranu í gærkvöld vísir/getty
Tottenham vann öruggan sigur á C-deildarliði Rochdale í endurteknum leik í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gærkvöld. Myndbandsdómgæslukerfið (VAR) var í stóru hlutverki í leiknum. „Þetta var leikur sem skilur margt eftir sig. Hann var mjög flókinn útaf þessu nýja kerfi, það var erfitt að halda athyglinni við leikinn,“ sagði Mauricio Pochettino. Mark Tottenham var dæmt af snemma leiks og urðu miklar tafir í kringum vítaspyrnudóm í fyrri hálfleiknum. Fyrst tók það langan tíma að dæma vítaspyrnuna og svo var mark Son Heung-min úr spyrnunni dæmt af eftir að hann stoppaði í tilhlaupinu. Öll ringulreiðin í kringum dómgæsluna tók hátt í tíu mínútur. „Ég held við séum með bestu dómara í Evrópu, ef ekki í heiminum. En ég veit ekki hvort þetta kerfi mun hjálpa þeim eða bara valda misskilningi. Fótboltinn er leikur tilfinninga og ef við drepum tilfinninguna þá breytist leikurinn.“ „Þetta er erfitt fyrir dómarann, ég vorkenni honum. En ég vorkenni stuðningsmönnunum meira því það er svo erfitt að skilja hvað er í gangi,“ sagði Pochettino. Kollegi hans hjá Rochdale, Keith Hill, tók undir það að þetta sé of flókið og það þurfi að nota myndefnið betur svo allir; dómarar, leikmenn og stuðningsmenn, skilji hvað sé að gerast.
Enski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Fleiri fréttir Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Sjá meira