Stjóri Rochdale fagnar dýfum Alli Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. febrúar 2018 13:30 Dele Alli fagnar marki. Hann hefur þrisvar fengið gult spjald fyrir að reyna að næla í víti. vísir/getty
Keith Hill, knattspyrnustjóri C deildar liðs Rochdale, sagðist styðja Dele Alli og meintar dýfur hans, sérstaklega ef hann nær að tryggja Englandi Heimsmeistaratitil. Rochdale mætti Tottenham í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gær og gerðu liðin 2-2 jafntefli. Alli nældi í vítaspyrnu undir lok leiksins sem Harry Kane skoraði úr og kom Tottenham yfir. Steve Davies jafnaði svo fyrir Rochdale í uppbótartíma. „Ég mun ekki erfa hann um þessa spyrnu og ef hann gerir þetta fyrir England í sumar og við vinnum HM þá mun ég svo sannarlega styðja hann,“ sagði Hill eftir leikinn í gærkvöldi. „Við eigum það til að missa okkur um of í samsæriskenningunum og eigum því að trúa því að hann sé að dýfa sér. Ég held hann hafi leitað að snertingunni í þetta skipti.“ Alli hefur verið spjaldaður oftar en nokkur annar leikmaður fyrir að reyna að fiska víti með leikaraskap. Hann fékk gult spjald fyrir þær sakir gegn Liverpool á dögunum og þótti mörgum hann falla nokkuð auðveldlega til jarðar í gær. Hill sér þó lítið að þeim tilburðum og telur það hið eðlilegasta mál að leikmenn nái sér í vítaspyrnur. „Ef framherji eða miðjumaður sér að hann er í tækifæri til þess að fá vítaspyrnu, frábært. Hvort sem það er Dele Alli eða Steve Davies þá skiptir það engu máli,“ sagði Hill. Liðin munu þurfa að spila annan leik til þess að knýja fram úrslit í einvíginu eftir jafntefli gærdagsins. Sá leikur mun fara fram í næstu viku.
Enski boltinn Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Valur - Stjarnan | Hörkuleikur á Hlíðarenda Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Fleiri fréttir Xhaka sekur fyrir að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane Sjá meira