Spyrnusérfræðingurinn Gylfi er maðurinn sem nýliðarnir óttast Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. mars 2018 11:00
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton vonast til að komast aftur á sigurbraut eftir tvö töp í röð í ensku úrvalsdeildinni á morgun þegar að liðið mætir nýliðum Brighton & Hove Albion á heimavelli. Everton-liðið er aðeins búið að vinna tvo leiki af síðustu tólf en það tapaði Íslendingaslag fyrir Burnley um síðustu helgi og 1-0 fyrir Watford þar á undan. Til allrar hamingju fyrir Everton er liðið á heimavelli á morgun, en það er búið að tapa í sex leikjum í röð á útivelli og er ekki að skapa sér mikið utan Guttagarðs. Nýliðar Brighton eru á miklum skriði en liðið er taplaust í síðustu fimm leikjum í deildinni (3 sigrar, 2 jafntefli) og er komið áfram í bikarnum. Þeir mæta því kokhraustir á Goodison Park á morgun. Maðurinn sem Brighton óttast á morgun er íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson, en hann er leikmaðurinn sem á að fylgjast með í gestaliðinu, samkvæmt upphitunargrein fyrir leikinn á heimasíðu Brighton. „Miðjumaðurinn er fastamaður í liði Everton og hefur verið það síðan að hann var keyptur fyrir metfé,“ segir í umsögn um Gylfa Þór. Sigurðsson stýrir spilinu inn á miðjunni fyrir Everton, en Íslendingurinn er búinn að skora fjögur mörk á leiktíðinni og gefa þrjár stoðsendingar.“ „Leikstjórnandinn hefur sannað sig sem einn besti spyrnumaður deildarinnar. Hann hefur skorað fjöldan allan af mörkum úr aukaspyrnum í gegnum árin með Reading, Tottenham, Swansea og Everton,“ er sagt um Gylfa Þór Sigurðsson.
Enski boltinn Tengdar fréttir Stóri Sam getur varla unnið leik en vill stýra Gylfa í mörg ár til viðbótar Sam Allardyce kom ekki til Everton til að staldra þar við í nokkra mánuði. 9. mars 2018 09:30 Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti Fleiri fréttir Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Sjá meira
Stóri Sam getur varla unnið leik en vill stýra Gylfa í mörg ár til viðbótar Sam Allardyce kom ekki til Everton til að staldra þar við í nokkra mánuði. 9. mars 2018 09:30