Fleiri fréttir af ungum framherjum Manchester United á förum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2018 08:00 Anthony Martial. Vísir/Getty
Tveir ungir framherjar Manchester United gætu verið á förum frá félaginu ef marka má nýjustu fréttirnar frá Old Trafford. Anthony Martial er sagður hafa hafnað nýjum fimm ára samningi við lið Manchester United en Martial hefur gengið illa að vinna sér fast sæti í byrjunliði United-liðsins. Fréttir af Martial eru bæði í frönskum og enskum blöðum í morgun en það var Marcus Rashford sem átti sviðljósið í gær. Rashford vill líka komast annað eftir að tækifærin hafa minnkað talsvert hjá þessum ungum landsliðsmönnum. Framtíð þessara tveggja ungu framherja hjá Manchester United virðist því vera í mikilli óvissu þar sem það lítur út fyrir að Jose Mourinho vilji gera breytingar á framherjahópi sínum í sumar. Því heldur Independent að minnsta kosti fram. RMC Sport report that Juve, Atlético & Spurs have surveyed about Martial. Martial wants to leave Man. United this summer. He no longer feels appreciated by the club and his relationship with Mourinho has been cold since the turn of 2018. pic.twitter.com/J9Xk1RGIvK — Arjun Pradeep (@IndianRegista) April 10, 2018 RMC Sport í Frakklandi segir frá því að Martial hafi ekki viljað skrifa undir nýjan fimm ára samning en Anthony Martial, sem er aðeins 22 ára gamall, hefur spilað með Manchester United frá 2015. Í fréttinni frá Fraklandi er Martial sagður óánægður með lítinn spilatíma og að hann hafi marga aðra möguleika því mörg stór félög í Evrópu hafa áhuga á honum. Koma Alexis Sanchez í janúar hafi sett hans stöðu í uppnám alveg eins og hjá Marcus Rashford. Martial er samt með samning út næsta tímabil en United er líklegt til að selja hann takist félaginu ekki að gera við hann nýjan samning. Martial er með 11 mörk og 10 stoðsendingar á þessu tímabili en spilatími hans hefur hrunið síðustu vikur eða síðan að Sílemaðurin kom frá Arsenal. Félögin sem eru sögð vera á eftir Martial eru lið eins og Paris Saint Germain, Juventus, Tottenham og Atlético de Madrid.Martial’s preference is to stay at #MUFC. The United hierarchy see him as a valuable player for the future. However there is a growing expectation that Mourinho will seek to further alter his attack in the summer and may see Martial as surplus to requirements. (Independent) — The ManUtd Blog (@the_manutd_blog) April 10, 2018 Í frétt Independent er meira skrifað um að Jose Mourinho ætli sér að hreinsa til í framherjahópnum og að Martial vilji helst vera áfram. Mourinho er víst ekki sáttur við óstöðugleika Martial en portúgalski stjórinn hefur nú reyndar ekki gefið franska framherjanum alltof mörg tækifæri til að ná upp þessum stöðugleika þar sem leikmaðurinn er alltaf inn og út úr byrjunarliðinu. Upp á síðkastið hefur hann þó verið út í kuldanum. Síðasti leikur Anthony Martial fyrir Manchester United var í bikarleiknum á móti Brighton og sá leikur fór fram í mars.
Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Fleiri fréttir Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa Sjá meira