Hafði ekki skorað í 913 daga en hefur nú skorað tvisvar á 11 dögum Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 9. september 2018 11:00 Berahino í leik með Stoke Vísir/Getty
Eftir að hafa ekki skorað eitt einasta fótboltamark í 913 daga virðist sóknarmaðurinn Saido Berahino ekki getað hætt að skora en hann hefur skorað tvö mörk á aðeins 11 dögum! Berahino var einn lykilmanna WBA tímabilið 2015-16 og vildi Tottenham fá hann í sínar raðir. Var hann til að mynda valinn í enska landsliðshópinn en var ónotaður varamaður. Tottenham lagði fram tilboð í leikmanninn en WBA vildi ekki selja hann við mikla gremju Berahino. Berahino fór í fýlu og neitaði að spila fyrir WBA og á endanum var hann seldur til Stoke. Þar hefur hann ekki staðið undir væntingum sem gerðar voru til hans, langt því frá. Berahino skoraði sitt fyrsta mark fyrir Stoke er hann skoraði gegn Huddersfield í enska deildabikarnum og endaði þar með 913 daga markaþurrð sína. Eftir að hafa flutt til Englands tíu ára gamall frá fæðingarlandi sínu, Búrúndí þá spilaði Berahino upp öll yngri landslið Englands. En þar sem hann spilaði aldrei mótsleik fyrir A-landslið Englands vildi hann að fá að spila fyrir fæðingarþjóð sína og er hann ný búinn að fá leyfi til þess. Berahino lék sinn fyrsta landsleik fyrir Búrúndí í gær og kom hann sínum mönnum yfir á 40. mínútu gegn Gabon í undankeppni Afríkukeppninnar. Það dugði hins vegar ekki til því Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Arsenal og stjarna Gabon jafnaði leikinn fjórtán mínútum fyrir leikslok. Urðu það lokatölur. Búrúndí er á toppi C-riðils í undankeppninni eftir 3-0 sigur á Suður-Súdan í fyrstu umferð.
Fótbolti Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Sjá meira