Innlent

Deilan um húsið á Hellubraut verður útkljáð fyrir dómi

Húsið Hellubraut 7 í Hafnarfirði var byggt árið 1907. Nú vilja eigendur lóðarinnar rífa það niður.
Húsið Hellubraut 7 í Hafnarfirði var byggt árið 1907. Nú vilja eigendur lóðarinnar rífa það niður. vísir/eyþór
Íbúar að Hamarsbraut 6 og Hamarsbraut 8 í Hafnarfirði hafa ákveðið að stefna Hafnarfjarðarbæ og Gunnari Hjalta­lín endurskoðanda fyrir Héraðsdóm Reykjaness. Ástæðan er sú að Hafnarfjörður samþykkti deiliskipulagsbreytingu og umsókn um byggingarleyfi að Hellubraut 5 og Hellubraut 7 í Hafnarfriði. Gunnar er eigandi lóðanna.

Stefnendur eru annars vegar Jakob Már Ásmundsson og Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir kona hans. Hins vegar Sigrún Arnardóttir og Sölvi Sveinbjörnsson.

Aðalkrafa þeirra er sú að felld verði úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna og að felldar verði úr gildi ákvarðanir byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um að samþykkja umsóknir um byggingarleyfi að Hellubraut 5 og Hellubraut 7. Til vara krefjast stefnendur þess að ákvarðanir um að samþykkja byggingaráform á lóðunum verði felldar úr gildi.

Lóðin Hellubraut 5 stendur auð núna. Á Hellubraut 7 stendur hins vegar einbýlishús sem byggt var árið 1907. Með deiliskipulagsbreytingunni yrði heimilt að rífa húsið. Í stefnunni er vísað til þess að húsið sé friðað. Minjastofnun hafi hins vegar heimilað endurnýjun hússins og gert það að skilyrði um að heimila niðurrif þess að nýtt hús með sama þakformi og halla og í sömu meginstærðum yrði byggt á grunni hins eldra.

Stefnendur segja að áformaðar byggingar séu miklu stærri en gert hafði verið ráð fyrir. „Verður að telja að fyrirhuguð hús að Hellubraut 5 og 7 séu meiri að stærð og umfangi en búast mátti við í ljósi byggðamynsturs deiliskipulagsreitsins og að gættu jafnræði um nýtingu lóða á svæðinu,“ segir í stefnunni.

Stefnendur telja að tveir fulltrúar bæjarstjórnar sem tóku ákvörðun um að samþykkja deiliskipulagið hafi verið vanhæfir til meðferðar málsins. Guðlaug Kristjánsdóttir, fulltrúi í bæjarstjórn, sé fyrrverandi maki íbúa á Hellubraut 3. Sá íbúi hafi gert athugasemdir við deiliskipulagstillöguna og teljist því aðili málsins þar sem hann hafi verulegra hagsmuna að gæta. Þá búi móðursystir Borghildar Sölveyjar Sturludóttur varabæjarfulltrúa einnig að Hamarsbraut 4. Hún hafi skilað inn athugasemdum við deiliskipulags­tillöguna.

Þá er bent á það í stefnunni að Gunnar hafi verið endurskoðandi fyrir Hafnarfjarðabæ og fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Hafnarfirði. Það og störf eiginkonu hans hjá bænum, sem varabæjarfulltrúi skapi vanhæfi borgarfulltrúa til að taka ákvörðun um deiluskipulagið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×