Skólamatur og gæsla dýrust í Garðabæ en ódýrust í Skagafirði atli ísleifsson skrifar 6. febrúar 2017 11:22 Hlutfallslega hækkar verð á hádegismat grunnskólabarna mest í Reykjavík milli ára eða um 30 prósent. Vísir/Pjeturanton
Allt að 51 prósenta munur er á kostnaði foreldra við hádegisverð og síðdegisvistun grunnskólabarna meðal stærstu sveitarfélaga landsins samkvæmt nýrri samantekt verðlagseftirlits ASÍ. Í frétt á vef sambandsins kemur fram að gjald fyrir hádegisverð, þriggja tíma síðdegisvistun og hressingu fyrir barn í neðri bekkjum grunnskólans sé hæst í Garðabæ, eða 36.484 krónur á mánuði, en lægst í Sveitarfélaginu Skagafirði, eða 24.234 krónur. „Heildarkostnaður foreldra vegna þessarar þjónustu hefur hækkað í öllum 15 sveitarfélögunum sem til skoðunar eru undanfarið ár. Mesta hækkunin milli ára er í Reykjavík, þar sem heildarkostnaður vegna þessarar þjónustu hækkar úr kr. 23.530 í kr. 26.100 á mánuði eða um 11% sem er að mestu tilkomið vegna hækkunar á hádegisverði. Minnsta hækkunin milli ára er hjá Ísafjarðarbæ þar sem heildarkostnaður foreldra fer úr 31.267 kr. á mánuði í kr. 31.603 kr. sem er 1% hækkun.“ASÍAllt að 41 prósent verðmunur á hádegisverði Ef einungis er litið til gjaldskrár fyrir hádegisverð sem í boði er fyrir grunnskólabörn á öllu aldri má sjá að allt að 41 prósenta verðmun milli sveitarfélaga. „Hæsta verðið er á Ísafirði þar sem máltíðin kostar 492 kr. eða 10.332 krónur á mánuði ef gert er ráð fyrir 21. vikum degi í mánuði. Lægsta verðið er hins vegar í Sveitarfélaginu Árborg, 349 kr. máltíðin eða 7.329 krónur á mánuði.“ Hlutfallslega hækkar verð á hádegismat grunnskólabarna mest í Reykjavík milli ára eða um 30 prósent, þar sem máltíðin fór úr 338 krónum í 441 krónur. Nánar má skoða niðurstöður rannsóknarinnar í frétt ASÍ.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Fleiri fréttir „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Sjá meira