Hópfjármagnar leiðangur til að sanna að jörðin sé flöt Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. september 2017 07:30 Rapparinn B.o.B. hefur barist hatrammalega gegn þeim víðteknum sannindum að jörðin sé hnöttur. b.o.b.
Rapparinn B.o.B. óskar nú eftir aðstoð almennnings við að fjármagna vísindaleiðangur sem myndi sanna í eitt skipti fyrir öll að jörðin er í raun flöt. Hann hleypti söfnunarsíðu af stokkunum í gær og stefnir hann á að safna 200 þúsund dölum, rúmlega 20 milljónum króna, svo að skjóta megi upp könnunarförum sem munu ljósmynda lögun jarðarinnar. Söfnunin fékk nafnið „Sýnið BoB sveigjuna“ og hefur rapparinn safnað 600 dölum það sem af er, um 60 þúsund krónum. Síðastliðið ár hefur B.o.B. barist hatrammlega gegn þeim víðteknu sannindum að jörðin sé hnöttur en ekki flatur diskur sem svífur um himingeiminn. Á Twitter-síðu sinni hefur hann birt það sem hann telur margvíslegar sannanir þess efnis að jörðin sé flöt, t.a.m. mynd af tveimur ónefndum borgum í Bandaríkjunnum sem eru í um 25 kílómetra fjarlægð frá hvorri annarri. „Hvar er sveigjan? Vinsamlegast útskýrið þetta,“ skrifaði hann við myndina sem sjá má hér að neðan.The cities in the background are approx. 16miles apart... where is the curve ? please explain this pic.twitter.com/YCJVBdOWX7— B.o.B (@bobatl) January 25, 2016 Tilraunir B.o.B. og annarra nafntogaðra efasemdamanna eins og Kyrie Irving, Tila Tequila og Sammy Watkins til að sannfæra almenning um eitthvað sem afsannað var fyrir árhundruðum síðan hafa farið óstjórnlega í taugarnar á vísindamönnum undanfarið ár. Þannig hefur stjarneðlisfræðingurinn Neil deGrasse Tyson þurft að skeiða ófáum sinnum fram á völlinn á síðustu mánuðum til að reka allar yfirlýsingar rapparans öfugar ofan í hann aftur. Hér að neðan má sjá eina af fjölmörgum heiðarlegum tilraunum stjarneðlisfræðingsins til að sannfæra hinn vantrúaða rappara.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira