Reiður kærasti með eggvopn handtekinn í Árbæ Birgir Olgeirsson skrifar 4. febrúar 2017 07:26 Talsverður erill hjá lögreglu í nótt. Vísir/HARI
Á öðrum tímanum í nótt barst lögreglu tilkynning um reiðan kærasta með eggvopn á ferð í Hálsahverfi í Árbænum. Maðurinn var handtekinn skömmuð síðar grunaður um brot á vopnalögum og vörslu ætlaðra fíkniefna. Var hann vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag. Annars var töluvert að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Um miðnætti var ökumaður stöðvaður í vesturbænum grunaður um ölvun við akstur. Hann var látinn laus að lokinni blóðtöku. Skömmu síðar var tilkynnt um karlmann sofandi ölvunarsvefni í miðbænum. Lögreglu tókst ekki að vekja viðkomandi og var hann því vistaður í fangageymslu þar til af honum rennur. Um svipað leyti var annar ökumaður stöðvaður grunaður um ölvun við akstur, en hann var látinn laus að lokinni blóðtöku. Rétt fyrir klukkan tvö í nótt var karlmaður sleginn og rotaður. Ekki er vitað um árásaraðila. Rétt fyrir klukkan þrjú var tilkynnt um umferðaróhapp á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Um var að ræða tvo bíla en að minnsta kosti tveir voru fluttir á slysadeild. Rétt fyrir miðnætti í gær var lögreglu tilkynnt um unglingahóp með læti í Hafnarfirði. Á öðrum tímanum í nótt var tilkynnt um ofurölvaðan mann dettandi á gangstétt í Hafnarfirði. Sá sem það tilkynnt taldi að maðurinn gæti farið sér að voða ef ekkert yrði að gert. Lögreglan fór á vettvang en viðkomandi fannst ekki. Um eitt leytið í nótt var kvartað undan hávaða frá flugeldum í Salahverfi en þeir sem skutu upp flugeldunum fundust ekki. Rétt fyrir klukkan þrjú í nótt var tilkynnt um slagsmál í Kópavogi. Þegar lögreglan kom á vettvang voru árásaraðilar farnir af vettvangi. Á fjórða tímanum í nótt var tilkynnt um bifreið upp á steini í Grafarvogi. Sá sem var grunaður um að hafa ekið bílnum var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Að lokinni blóðtöku var ökumaður vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar.
Mest lesið Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Innanlandsflugi aflýst Innlent Fleiri fréttir Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Sjá meira