Metsölubækurnar ódýrastar í Bónus Sigurður Mikael Jónsson skrifar 5. desember 2017 07:00 Innan um frosna skrokka má finna bækur í jólapakkann á kostakjörum í Bónus. vísir/pjetur
Allt að 52 prósenta verðmunur er á bókum í jólabókaflóðinu milli verslana. Bónus er nær undantekningarlaust með lægsta verðið í verðathugun Fréttablaðsins á þrettán völdum bókatitlum í fimm verslunum. Costco tekur nú þátt í íslenska jólabókaflóðinu í fyrsta sinn. Þar er úrvalið af öðrum toga en hjá öðrum verslunum og aðeins valdir titlar eftir íslenska höfunda fáanlegir. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda telur það slæma þróun að matvöruverslanir séu með svo sterka stöðu í jólabókaflóðinu á kostnað heilsársbóksala. Úrvalið einskorðist við metsölubækur. Forsvarsmenn Costco komu til Íslands í sumar gagngert til að kynna sér íslenska jólabókaflóðið og möguleikann á þátttöku í því. Af samanburði Fréttablaðsins að dæma eru verð Costco samkeppnishæf en þó nokkuð hærri en hjá Bónus. Þá gefur athugun blaðsins einnig vísbendingar um niðurstöður greiningar forsvarsmanna Costco. Þeir virðast ætla að veðja á titla fárra útvalinna og vinsælla höfunda fremur en úrval. Eins og sjá má í meðfylgjandi töflu er mesti verðmunurinn í athugun blaðsins á bók Vals Gunnarssonar, Örninn og fálkinn. Bókin er ódýrust í Bónus á 4.598 kr. en dýrust í Hagkaup á 6.999 krónur. Sömuleiðis munar ríflega 48 prósentum á barnabókinni Amma best eftir Gunnar Helgason. Hún kostar 3.298 krónur í Bónus en 4.899 krónur í Hagkaup.Verðkönnun FréttablaðsinsEn hvað skýrir þennan mikla mun milli verslana? Það er ekki nýtt að Bónus bjóði lægsta verðið. Þátttaka Bónuss í jólabókaflóðinu hefur löngum verið hefðbundnum bóksölum þyrnir í augum. Benedikt Kristjánsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, segir að útgefendur ráði ekki útsöluverði. „Bóksalarnir mega gefa þetta eða selja undir innkaupsverði ef þeir vilja.“ Benedikt segist þeirrar persónulegu skoðunar að þróunin sé ekki góð. Hún fækki heilsársbóksölum. „Við þessu er lítið að segja og þetta eykur vafalaust söluna á þessum metsöluhöfundum. En Bónus er aðeins með brot af þeim bókum sem koma út í ár, Costco enn þá minna og þetta bitnar á bóksölum sem þó eru að reyna að selja allar tegundir bóka allt árið, bæði það sem selst lítið og meira.“ Benedikt kveðst ekki vita betur en að Bónus sé með álagningu á bækurnar líkt og aðrir, þótt hún kunni að vera lág. „Hugsanlega eru útgefendur að gefa þeim meiri afslátt en öðrum í krafti stærðar. En fólk þarf að hafa í huga að þetta eru ekki innkaup sem slík. Verslanir og bókabúðir kaupa það sem þeir selja og skila svo óseldum bókum. Þannig er það því miður orðið. Bónus er til dæmis aðeins með bækur í kringum jólin, fyrir utan kannski einn stand með smábarnabókum. Þeir koma inn í jólabókaflóðið og skila svo afganginum um áramótin. Þeir ætla ekki að lifa á þessu, mín tilfinning er að þetta sé aðdráttarafl fyrir verslunina.“ Könnunin var gerð í gær í Bónus Kauptúni, Costco, Hagkaup í Kringlunni, Pennanum-Eymundsson Kringlunni og á vef A4. Valdar voru skáldsögur eftir þekkta íslenska höfunda, lífsstílsbók Sólrúnar Diego sem slegið hefur í gegn og síðan fjórar barnabækur, þar af ein þýdd, eftir breska metsöluhöfundinn David Walliams. Á þessum árstíma geta verið miklar sveiflur í verðlagningu verslana á bókum. Dæmi eru um marga titla sem hafa lækkað um hundruð króna síðan fyrir helgi. Ekki er útilokað að verð lækki frekar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Metfjöldi í Hlíðarfjalli á stórafmæli Andrésar Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi í Hlíðarfjalli á stórafmæli Andrésar Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira