Tómlæti yfirvalda sést í fækkun sjúkrarúma Svavar Hávarðsson skrifar 11. mars 2017 07:00 Þórarinn Tyrfingsson, forstjóri Sjúkrahússins Vogs.
Heilbrigðisyfirvöld hafa fækkað sjúkrarúmum fyrir meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga úr 265 þegar mest var í lok árs 1985 í 62 rúm í lok árs 2014. SÁÁ og geðdeild Landspítalans hafa reynt að vega upp þessa fækkun sjúkrarúma með dagdeildarþjónustu, en viðbúnaðurinn hefur engu að síður minnkað stórum. Kostnaður vegna vímuefnavandans hefur færst frá ríkinu yfir á sveitarfélög, einstaklinga og almannasamtök. Þetta kemur fram í nýútgefnu ársriti meðferðarsviðs SÁÁ 2016. Ein af grunnniðurstöðum höfundarins, Þórarins Tyrfingssonar forstjóra Sjúkrahússins Vogs, er að ef litið er til þess hversu margir greinast áfengis- og vímuefnasjúkir, og hversu alvarlegur og afdrifaríkur sjúkdómurinn er, megi fullyrða að sjúkdómurinn sé sá alvarlegasti sem Íslendingar glíma við um þessar mundir. Þegar viðbúnaður heilbrigðisyfirvalda vegna sjúklingahópsins er mældur í sjúkrarúmum, að fullu greiddum af ríkinu, sést að þeim hefur fækkað jafnt og þétt á rúmlega þriggja áratuga tímabili [heildarframlög til SÁÁ eru 850 milljónir á fjárlögum]. Voru 265 árið 1984 þegar Íslendingar voru 151.000 á aldursbilinu 15 til 64 ára en 62 árið 2015 þegar í aldurshópnum voru 217.500 manns. Þórarinn segir að með aðgerðum stjórnvalda hafi dregið verulega úr meðferðarþjónustu og tiltekur ártalið 2000 sérstaklega vegna þess að „flest bendir til þess að umfang og kostnaður vandans hafi á sama tíma aukist“. Hann telur það vafamál hvort Íslendingar haldi sérstöðu sinni hvað varðar áherslu á áfengis- og vímuefnameðferð, ef litið er til annarra þjóða og framtíðarinnar. Áhyggjuefnið er mun minni þátttaka Landspítala og annarra meðferðarstofnana í áfengis- og vímuefnameðferðinni. Þórarinn segir að SÁÁ hafi reynt að halda úti óbreyttri þjónustu á eigin kostnað sem nemur um 250 milljónum árlega. Það sé gert með því að breyta ætluðum dagdeildum af hálfu heilbrigðisráðuneytisins á Vík og Staðarfelli í innlögn á sjúkrastofnun. Þannig hefur sjúkrarúmum á Vogi verið fjölgað úr 42 í 60. Í samtali við Fréttablaðið segir Þórarinn að í fækkun sjúkrarúma sem eru að fullu greidd af heilbrigðisyfirvöldum, úr 265 í rúmlega 60, megi sjá eina birtingarmynd þeirrar gríðarlegu færslu sem orðið hefur á umönnun frá ríkinu til sveitarfélaga – og nefnir fatlaða og aldraða. „Þarna er ein tilfærslan til viðbótar alveg sláandi, nú er þessu fólki vísað á sveitarfélögin og það er ekkert að ástæðulausu sem vex svona kostnaður Reykjavíkurborgar vegna þessa vanda í félagsþjónustu og ýmsum búsetuúrræðum sem þeir halda upp, svo dæmi sé tekið,“ segir Þórarinn. Aðspurður hvað liggi hér að baki segir Þórarinn að málið sé hápólitískt, og spurningum um úrræði sé oftast mætt með fullkomnu tómlæti.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Fyrirgefur morðingjanum Erlent ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Innlent Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Innlent Réðst á konur og sló í miðborginni Innlent Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Innlent Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Innlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Innlent Fleiri fréttir Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Sjálfstæð Palestína, væringar í Framsókn og fækkun um eitt sveitarfélag Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Sjá meira